Verðmunur á skinnum

Home Forums Umræður Skíði og bretti Verðmunur á skinnum

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45433
    agauti
    Member

    Var að kaupa Black Diamond skinn á http://www.telemark-pyrenees.com/en/
    og borgaði 25þús fyrir þau komin heim að dyrum með hraðsendingu.
    Pöntuð á þriðjudagskvöldi og komin í hús á föstudegi. Inní þessu er vsk og tollur.

    Sé að þessi sömu skinn kosta 34þús í Fjallakofanum http://fjallakofinn.is/?webID=1&p=113&sp=116&item=681.

    Þetta er nú frekar ríflegur verðmunur að mínu mati.

    #57602
    Páll Sveinsson
    Participant

    Ekki það að ég sé að réttlæta verðið í Fjallakofanum en þú verður að hafa allt upp á borðinu. Er sangjart að bera saman útsöluverð á netinu við fullt verð annarstaðar? Eru þau ekki á 20% afslætti þessa dagana hjá Dóra?

    kv.
    P

    #57610
    1001813049
    Member

    Mér finnst gott að fólk sé að benda á þegar það gerir kaup sem það er ánægt með öðrum til fróðleiks. Þetta gæti flokkast undir neytendavitund sem við erum ekkert sérstaklega öflug í hér á landi. Allar ábendingar um góða kaup, þjónustu og aðra góða díla eru alltaf vel þegnar hvort sem við erum að bera saman íslenskar búðir sem eða erlendar vefverslanir þá er mér alveg sama. Íslenskir söluaðilar hljóta að gera sér grein fyrir að þeir eru í samkeppni við erlendar vefverslanir.
    Kv KM

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.