Vatnsfestival Ìsalp

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Vatnsfestival Ìsalp

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46048
    Jokull
    Member

    Er enginn farinn að velta þeirri óþægilegu staðreynd fyrir sér að það er enginn ís til að halda festival???

    #47728
    0405614209
    Participant

    Daginn og blessaðan góðan.

    Ég er einn af þeim sem líst alls ekki á aðstæður eins og þær eru víst núna – enginn ís og bara hellingshiti og rigning. Engar fréttir eru ekki góðar fréttir.

    Satt að segja lítur út fyrir að Ísfestivalinu verði frestað.

    Ef einhver veit stöðu mála núna þá vinsamlegast sendið inn línu á vefinn.

    Halldor formaður

    #47729
    2607683019
    Member

    Það er allur ís horfinn af suðausturlandi, nema kannski úr kjæliborðinu í kaupfélaginu…Einar Öræfingur

    #47730
    0310783509
    Member

    Var fyrir austan núna áðan og ég get vottað það að allur ís sé horfinn af svæðinu meira segja Sólheimajökull bráðnaði nánast undan mér á meðan ég stóð þarna…
    en svo byrjaði að snjóa, ég brosti og hugsaði “jæja ég get allavegana kannski farið á skíði ???” var ekki búinn að hugsa setninguna til enda og þá byrjaði úrhellisrigning… er verið að reyna að segja mér eitthvað???

    #47731
    Jón Haukur
    Participant

    Hvað segja norðanmenn, er öllu búið að rigna niður úr Kinninni, það hlýtur eiginlega að vera fyrst allur snjór er farinn úr Hlíðarfjalli… Málið er kannski bara spa meðferð í einhverjum nálægum krapapolli.

    jh

    #47732
    Anonymous
    Inactive

    Já það er óhætt að segja að maður er í hálfgerðu sjokki eftir að hafa hlakkað til í allan þennan tíma og svo púffff alllt bú….
    Já veðurguðirnir eru ekki í guðatölu hjá okkur núna það er víst. Stjórn Ísalp fundar í kvöld og tekur endanlega ákvörðun um þetta mál en því miður lítur það alls ekki vel út.
    Olli

Viewing 6 posts - 1 through 6 (of 6 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.