Út að leika

Home Forums Umræður Almennt Út að leika

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45560
    2806763069
    Member

    Kominn í vinnuna? Ekki gaman! Hvernig væri að gera eitthvað skemmtilegra í dag?

    Vantar leikfélaga, ekkert erfitt (maður er nú bara bauna-ræfill).

    kv. Ívar 699 2876

    Til þeirra sem ég vakti í morgun, ég hélt það væri laugardagur og á þannig degi hef ég ekkert samviskubit yfir að vekja fólk fyrir 08:00. Sorry!

    Árni á ekki að fara að opna þetta svæði á skikkanlegum tíma fyrir okkur sem ekki tilheyrum hinni vinnandi stétt?
    Þjónustan við iðjuleysingja í þessu samfélagi er algerlega til háborinnar skammar!

    #52340
    0801667969
    Member

    Jú opnar kl. 14. Dúnúlpan sem ég keypti af Leifi á basarnum nú í haust svínvirkar. Hér er dúnalogn og 15 stiga frost. Svínhált og harf færi víðast utan brauta.

    Sólarupprásin er hreint mögnuð hér upp á Fjalli. Útsýnið svíkur engan. Eyjafjallajökull og hinir Suðurjöklar blasa við. Vestmannaeyjar og Surtsey virðast í seilingarfjarlægð. Norðar er svo Hekla, Skjaldbreiður, Þóris-og Eiríksjökull. Snæfellsjökull kemur skýrar inn með kvöldinu. Það eru svona morgnar sem halda manni gangandi.

    Kv. Árni Alf.

    #52341
    Sissi
    Moderator

    hehehe – ég fór alveg grenjandi í vinnuna í góða veðrinu, hélt að þú værir bara að pína mig ;)

    Siz

    #52342
    2104833659
    Member

    Ætlum í Haukadal um helgina, er einhver topo eða myndir sem þið lumið á þaðan?

    #52343
    0311783479
    Member

    Arsritid fra ’98 minnir mig, er med leidarvisinn.

    kv.
    Halli

    #52344
    Skabbi
    Participant

    Jep

    Ársritið ’98 geymir fyrirtaks leiðarvísi að Haukadal. Ég skildi reyndar eftir eintak að Stóra Vatnshorni síðast þegar ég var þar, vona að það sé þar enn. Í framhaldi bið ég menn að gæta þess að skilja það eftir þar ef þeir dvelja þar við klifur.

    Hvað eruð þið mörg Raggi? Var að benda 4 útlendingum á Haukadal um helgina, með gistingu á Stóra Vatnshorni.

    Allez!

    Skabbi

    #52345
    2104833659
    Member

    Uhh.. ég held við séum 4 líka… gistum einmitt á Stóra Vatnshorni.
    ég tékka á leiðarvísirnum þarna, skil hann eftir.

    -Raggi

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.