Ísklifurleiðarvísir fyrir Öræfi/Klaustur

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifurleiðarvísir fyrir Öræfi/Klaustur

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46692
    2607683019
    Member

    Ég ætlaði að fara að skrá mig inn í Ísklifurfestivalið í Köldukinn en sá þá að það var búið að breyta yfir í Klaustur/Öræfi. Ekki verra, það er enn nóg fyrir alla hér fyrir austan.
    Ég var loksins að opna ísklifursíðurnar mínar aftur eftir smá hlé. Nú eru upplýsingar um ísklifur í Öræfum, (og aðeins á Kirkjubæjarklaustri og við Núpsstað) komið á http://www.oraefi.is
    Mountaineering linkurinn.
    Vonandi fer að frjósa aftur…Einar Öræfingur

    #47713
    0704685149
    Member

    Það er samt ekki öll nótt úti enn fyrir þig að renna norður í land þótt það sé ekki til að berja ís.

    Þú hefur tækifæri til að koma á Telemarkhátíðina á Akureyri, helgina 14. – 16. mars sem verður haldin í Hlíðarfjalli.
    Einnig getur þú komið í Fjallaskíðakeppnina sem verður haldin um páskana í Hlíðarfjalli.

    Endilega skráðu þig…

    kveðja Bassi

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.