Ísklifur í hjarta bæjarins

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Ísklifur í hjarta bæjarins

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47170
    Steinar Sig.
    Member

    Margir hafa sennilega tekið eftir vænum ísbunkum við vegkantinn á leið í gegn um Mosfellsbæinn. Þetta verður oft vel ísað, en hvergi er það mjög hátt eða bratt.

    Nú hefur aftur á móti verið sprengt duglega í bergið til þess að útbúa risavaxið bílastæði við Korputorg. Þar er hellingur af ís og þokkalega háir veggir undir flóðlýsingu frá bílastæðinu. Fljótlegt er að hlaupa upp fyrir klettinn og snara einhverju utan um ljósastaurinn fyrir ofan og taka gott æfingasession í lóðréttum ís. Leiðirnar eru allt frá lágum og vel auðveldum byrjandaís út í lóðréttan mikið kertaðan ís og mix. Hæstu leiðirnar eru líklega 8 metrar eða svo.

    Snilld á virkum dögum í hádeginu, á leið heim úr vinnu eða á kvöldin.

    Svo má ekki gleyma að það er pylsuvagn hinum megin við planið. DV0810023952_Korputorg_01_jpg_550x400_q95.jpg

    #54987
    AB
    Participant

    Jæja, segið svo að góðærið hafi ekki fært okkur eitthvað nytsamlegt.

    Krepputorg sér um sína.

    AB

    #54992
    0808794749
    Member

    Það var sannarlega sósjal stemmning á bílastæði Krepputorgs í kvöld. Tíu manns mættu á svæðið og munduðu axir og brodda.
    Hressandi mánudagskvölds-afþreying.
    Nokkrar myndir frá hittningnum.

    #54994
    Arnar Jónsson
    Participant

    Hvernig er það annars með turnin í Grafarvogi, datt engum í huga að kveikja á honum í þessum flotta frostakafla sem er búin að vera?

    Kv.
    Arnar

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.