Fréttir af Ísalp-klifri?

Home Forums Umræður Almennt Fréttir af Ísalp-klifri?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46853
    AB
    Participant

    Endilega segið frá ferðinni, ef farin var.

    Kveðja,
    AB

    #52100
    Sissi
    Moderator

    Ég hitti Gulla með kúlu á hausnum í dag niðri í bæ, hann verður samt að segja frá því sjálfur hvort það er eftir klifrið eða jólaglöggið.

    Aðventuklúbburinn lagði leið sína í Tindfjöll, reyndar aðeins dagsferð í þetta skiptið vegna skítviðris á föstudaginn. Steppo, Hálfdán, Siggi Skarp og Kiddi Gylfa ásamt undirrituðum.

    — Veðurguðirnir eru hættir að ganga vel um skálann. T.a.m. mokaði ég sl. laugardag upp 10 skóflum af harðtroðnum snjó úr kojunni sunnanmegin. Bendir til þess að þarna hafi ekki verið á ferðinni fjallamenn sem eru ekki almennilega “orðvanir” nýlega. —

    Bættum líka slatta af brenni undir kojuna og settum nýja kamínuhringinn á sinn stað. Hann fellur ekki ofan í ysta hringinn, þarf líklega að taka hann í bæinn í síðar og renna aðeins betur af honum. Held að þetta sé vel brúklegt samt í bili.

    Það hafði skafið aðeins inn um viðgerða gluggann (kannski gerðist það áður en það var skipt um?) og örlítið inn um gluggan á svefnloftinu líka.

    Annars er þetta bara í sæmilegu standi þarna, nýja millihurðin og glugganir líta prýðilega út.

    Skíðuðum nokkrar ferðir fyrir ofan Miðdal í fínu púðri ofan á hörðu og flúðum síðan í bæinn undan fjórða óveðri vikunnar. Hinn besti dagstúr og miklu betra veður en spáð var.

    Kíktum inn í nýja flubbaskálann – það er nú hálf sorglegt um að litast þar. Hurðin var opin og skálinn fullur af snjó sem hafði skafið inn um óþétta veggi og hurðina. Við erum að tala um rúmmetra. Fer örugglega ekki vel með gólf og veggi. Bundum hurðina aftur en gátum lítið meira gert fyrir greyið.

    Siz

    #52101
    2008633059
    Member

    Hérna kemur stutt frásögn af jólaklifri ÍSALP núna á laugardaginn.

    Stjórn ÍSALP auglýsti fyrir nokkru jólaklifur sem undirritaður skráði sig að sjálfsögðu í, engin spurning að taka þátt í öllu skemmtilegu sem klúbburinn stendur fyrir. Stefnan var sett upp í Elífsdal, veðrið eins og best gerist og hélst þannig allan daginn, gott skjól í dalnum fyrir vindi fyrir utan smá ofanfok af fjallinu þegar á leið. Að því er best varð séð voru flestar leiðir í góðu standi þrátt fyrir asahláku vikuna á undan.

    Eftir þetta venjulega brekkutölt, pælingar í kennileytum og nokkrar frægðarsögur af klifi á þessum slóðum (ásamt fínum tipsum um hvernig hægt er að bjarga sér ef WC rúllan gleymist heima) var komið að verkefni dagsins, Einfara sem var í fínum aðstæðum. Broddar voru því spenntir á og axirnar mundaðar. Þótt það komi málinu ekkert við þá lúkkaði undirritaður svo sem ekki neitt vel með fetlana á sínum öxum, en til allrar hamingju voru legghlífarnar látar óhreyfðar í bakpokanum.

    Hópurinn sem taldi sex manns skipti sér í tvær línur og síðan hófst bröltið. Reynsluboltarnir sem fullyrtu fyrst að að þetta væri nú bara klassísk 3ja gráða voru samt eitthvað farnir að tala um “stífa 3ju gráðu”. Þeir sem voru með tæknina á hreinu fóru þetta samt áreynslulaust án meðan aðrir lömdu og spörkuðu ísinn af öllum kröftum, lafmóðir og svitastorknir. Allir hreyfðust samt upp á við og kláruðu fyrstu spönnina.

    Í annarri spönn fór svo að verða virklega gaman, ekki síst eftir að einhverjir tóku upp á því að taka teygjustökk í línunum og jafnvel að fleygja frá sér öxum í leiðinni. Það var meira að segja stungið upp á því að endurskíra leiðina Eplatré með vísun til ofþroskaðra ávaxta sem eiga til að falla til jarðar. Þarna skildu leiðir, á meðan sumir sigu bara niður kröfsuðu aðrir sig áfram upp í gegnum tortryggt ísfrauð og síðan snjóhengu á brúninni. Hlýtur að hafa verið mikið afrek því fagnaðarópin heyrðust langt niður í dal!

    Þeir sem ekki fóru alla leið upp voru komnir í bæinn um hálf átta en hinir að verða níu. Að sjálfsögðu fóru allir beint í jólaglögg klúbbsins og skemmtu sér vel. Þetta var glæsileg ferð og vil ég þakka ferðafélögunum, Freysa, Skabba, Bjögga, Gulla og Braga fyrir skemmtilegan dag!

    JLB

    #52102
    Anonymous
    Inactive

    Hvernig voru tjaldsúlurnar? Var Tvífarinn byrjaður að myndarst og aðrar leiðir hvað með þær??
    Var Tríóið eitthvað farið að myndast???
    Olli

    #52103
    gulli
    Participant

    Sælir …

    Mig langar ekkert að ræða þessa kúlu á hausnum neitt sérstaklega ;). En takk fyrir daginn drengir. Myndir á

    http://grettisgata.eitthvad.is/jolaklifurisalp2007

    Kveðja,
    Gulli

    #52104
    Smári
    Participant

    Fimm ísalparar skelltu sér í Bláfjöll á Laugardag í JÓLASKÍÐAIÐKUN ;) þar fundum við eina línu sem var eftir á svæðinu eftir rokið mikla.

    Voru skíðaðar tvær ferðir og þótti bara nokkuð gaman.

    Smári

    #52105
    1108755689
    Member

    Glæsilegar myndir Gulli, eitthvað ertu samt að rugla mér og Jóni Lofti saman þarna.

    Takk fyrir daginn

    #52106
    gulli
    Participant

    Sælir, já, virðist hafa kallað þig ýmist Braga eða Jón Loft. Einhver meinloka, biðst afsökunar. En núna á þetta allt að vera í standi.

    #52107
    1108755689
    Member

    kallaðu mig bara Eplið, hehehe!

    #52108
    AB
    Participant

    Þið talið í gátum.

    Leysið nú frá skjóðunni! Hver datt? Og hvað með kúluna, Gulli?

    Kveðja,

    AB

    #52109

    Lét Gulla fá myndirnar sem ég tók og hann skellti þeim inn í sama albúm. Eins og sjá má þá versnaði veðrið þegar á leið. Hressandi og skemmtilegar vetraraðstæður.

    Velhepnuðu lokaáhlaupi uppá topp var auðvitað fagnað gríðarlega svo ómaði um allan dalinn að því er fregnir herma. Verst að aðstæður leyfðu ekki myndatökur þarna í restina, enda myrkur og annað og mikilvægara í forgangi en að hugsa um slíkt.

    Eðaldagur á fjöllum…

    #52110
    1108755689
    Member

    Það var undirritaður sem tók stefnuna rakleiðis á sjávarmál í þriðju spönn. Skildi aðra öxina eftir í stálinu og fleygði hinni í tignarlegum boga niður í snjóbrekkuna fyrir neðan. Dinglaði svo eins og ofþroskað epli í eplatré, niðurlægður fyrir lífstíð.

    Bragi

    #52111
    2008633059
    Member

    Bragi, minni á að þú lofaðir að skrifa grein í næsta ársrit um fyrirbærið “klifurnördinn”.

    Smellpassa ekki þessir gaurar alveg við þá skilgreiningu sem þú varst með?

    http://www.youtube.com/watch?v=fTTRNsyRUso

    Annars er Andy með margar helv. flottar myndir á flickr-síðunni sinni (linkar neðst á psychovertical.com)

    #52112
    2806763069
    Member

    Þetta eru nú reyndar helv. svalir nördar. Þó þeir verði nú reyndar líklega að vera klæddir í Gore-Tex og með hjálm svo einhver sjái cool-ið.

    #52113
    AB
    Participant

    Flottar myndir, strákar.

    Kveðja,

    AB

    #52114
    Freyr Ingi
    Participant

    Hvar er tvífarinn?

    Hélt um tíma að það væri ísþilið sem við lékum okkur í á laugardag og sést á myndunum frá strákunum. Þ.e austan við hinn eiginlega Einfara.. það er skoruna sjálfa.

    En nú er ég ekki viss, er tvífarinn kannski íslínan á hægri vængnum inni í Einfaraskorunni? Hmmm.

    Hvað segja menn um það?

    FIB

    #52115
    Sissi
    Moderator
    #52116
    Björk
    Participant

    Hressa skíða/bretta – fólkið

    http://myndir.bjork.ws/jolaisalp

    #52117
    Robbi
    Participant

    hahahahaha, þeir eru skuggalega líkir…lurk og tvífari hans !
    robbi

    #52118
    Anonymous
    Inactive

    Jú rétt hjá þér Freyr. Tvífarinn er íslænan sem er hægra megin. Hún hefur (að því er ég veit) verið klifruð einu sinni fyrir mörgum árum.
    Olli

Viewing 20 posts - 1 through 20 (of 20 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.