Daglegt brauð

Home Forums Umræður Almennt Daglegt brauð

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45246
    2502614709
    Participant

    Banff var helvíti gott enginn killer einsog í fyrra. Þá er jákvæðnin búin og komið að því að nöldra; það er ömurlegt að vera alltaf með sömu 10 myndirnar á síðunni. Alltaf ný mynd á hverjum degi! ok bara óvart sama mynd og um daginn. Böbbi krúsar örugglega að koma í 3 sinn! Hvað næst klifur í Óshlíð!

    #48628
    0311783479
    Member

    Ef þú lumar á góðum myndum Ingvar þá endilega láttu okkur vita því nema að þú viljir að Böbbi krúsi á þig í fjórða skiptið ;o)

    Nei að öllu gríni slepptu þá vonumst við til að fá myndir frá sem flestum.

    -lifið heil
    vefnefnd

    #48629
    0405614209
    Participant

    Hólímóses.

    Eruð þið nokkuð búnir að skemma skannerinn fína sem ég lánaði til verksins? Ég á slangur af myndum en vantar skannerinn aftur til að koma þessu á nothæft form.

    Hvernig væri að bjóða mönnum að mæta eitt kvöld með slides eða myndir og láta skanna fyrir sig?

    Der Halldór

    #48630
    2502614709
    Participant

    Kom vel á vondann! En einhverjir eiga, myndirnar hans Palla hafa t.d. verið skemmtilegar…

    #48631
    0311783479
    Member

    Við tökum skurk í þessu um helgina (finnst eins og ég sé farinn að lofa upp í ermina á mér hehehe)

    -hg

    #48632
    2806763069
    Member

    Inni á tölvunni í KH er haugur af myndum frá mér og Olla ofl. Þið megið örugglega nota þær allar.
    Svo er Íslandsmeistarinn líka með myndir úr ársritunum uppi á sökkvum landinu kontórnum sínum.

    #48633
    Ólafur
    Participant

    Jæja góðir hálsar.

    Ég henti inn slatta af myndum frá Steppo þ.a. það verða hér frumsýningar á hverjum degi næstu dagana.
    Svo er bara að senda myndir á vefnefnd@isalp.is ef menn/konur vilja ölast frægð og frama.

    Hvernig væri að senda okkur eitthvað af þessum myndum sem þú ert að tala um Ívar?

    -órh

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.