Austurárdalur – myndir frá sunnudeginum

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Austurárdalur – myndir frá sunnudeginum

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46456
    Jón Haukur
    Participant

    Er búinn að setja myndir frá því úm helgina inn á síður félaga, ásamt grófum tópó.

    jh

    #48352
    1410693309
    Member

    Virkilega glæsilegar myndir Jón Haukur (þó e.t.v. óþarflega mikið af portrettum). Er stóra kertið í miðjunni ófarið eða gleymdist bara setja það inn á topo-ið?
    F.h. sófaklifrara
    SM

    #48353
    0704685149
    Member

    FLottar myndir en er engin snjór þarna fyrir sunnan og vestan, bara ís? Hér var bara skíðað í lausamjöll á sunnudaginn í Hlíðarfjalli. Vonandi snjóar hér fyrir norðan á morgun og fram að helgi svo hægt sé að endurtaka leikinn. Swing.
    Bassi

    Muna svo að skrá sig á Telemarkhelgina um miðjan mars.

    #48354
    0405614209
    Participant

    Tær snilld – verður staðurinn ekki kallaður Ívarsvellir?

    Kveðja
    Halldór formaður

    #48355
    0311783479
    Member

    Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að klifra með goðsögnum í lifanda lífi og þyggja ráð eða tvö um það sem betur mætti fara.
    Þakka ég kærlega fyrir mig!

    Fleiri myndir úr Austurárdal:
    http://gallery.askur.org/Austur%E1rdalur

    -kveðja
    Halli

    #48356
    Jón Haukur
    Participant

    Stóra kertið í miðjunni er ófarið. Ívar sneri við eftir um 10 m, eða þar um bil, ég sá það annars ekki nákvæmlega.

    ….Lastu ekki smásöguna í myndatextanum, ég hélt að þetta hefði komið fram þar.

    Fyrir utan þetta annars ágæta svæði og sérdeilis fínt sósíalklifur á sunnudaginn, þá er mikil bragabót af nýfenginni lausn á netmálum klúbbsins. Að öðrum kosti væru myndirnar tæplega komnar upp og ber því að gratúlega netverjunum rækilega fyrir framtakið.

    kv. jh

    #48357
    1410693309
    Member

    Jú, ég las lýsinguna. Fannst bara öruggara að stíga varlega til jarðar og hrapa ekki að neinum ályktunum þegar fyrir liggur að Hardcore og önnur stórmenni eiga í hlut. Maður getur semsagt dundað sér við að vísúalisera kertið í sófanum, þökk sé góðri myndatöku.

    #48358
    Ólafur
    Participant

    Er þá ekki kapphlaup í gangi??
    Námsmenn og vinnuskróparar að pukrast í laumi.
    Skildi Ívar kannski eftir skrúfu og teipaði fyrir gatið?

    #48359
    2806763069
    Member

    Leit aftur á kertið í dag. Ég reyndir í þetta skiptið við bakhliðina á skrímslinu og klifraði 2 metra upp. Þá hvað við hvellur og draslið færði sig svona hálfan millimeter niður, auk þess byrjaði að leka vatn niður þessa hlið sem áður var þurr. Við þetta minnkaði áhugi minni á þessu kerti all snarlega. Ég held ég sé svo ekkert að reyna við þetta skrímsli aftur, þið meigið bara eiga það, fýla ekki svona frístandandi dót lengur!

Viewing 9 posts - 1 through 9 (of 9 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.