aðstæður??

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur aðstæður??

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45421
    2806763069
    Member

    Bráð vantar upplýsingar um aðstæður fyrir næstu vikur, hefur einhver séð ís einhverstaðar?

    #49484
    Siggi Tommi
    Participant

    Vorum í Eilífsdal með fjallamennskunámskeið um helgina.
    Fullt af ís, Einfarinn (og Tvífarinn, ef ég skildi þá línu rétt) og mið Tjaldsúlan góðar (og “Þursinn hans Steppó) en óneitanlega óhemju bráðnun í gangi. Lítið hrunið frá því á sunnudaginn fyrir viku sýndist mér samt (nema lítið snjóflóð fallið úr Þilinu).
    En ef kalt verður í veðri þá væri án efa hressandi kíkja uppeftir.

    #49485
    2002773689
    Member

    Í Skíðadal inn af Svarfaðardal eru fínar ísaðstæður og það þarf ansi hreint mikið til að ísinn hverfi. T.d. er um 4-5 stiga hiti að degi til núna en frýs um nætur og ísinn er fagurblár hér í fjallinu fyrir ofan.

    Veit ekki hvort þú hefur séð þetta en það er svolítið Múlafjallsyfirbragð á þessu. Labb upp bratta brekku og svo einnar spannar leiðir og einhverjar lengri. Örugglega líka fínt í mixað klifur eins og staðan er núna.

    Nú, svo má ég til með að benda á frábæran gististað í dalnum. Hús sem heitir Möðruvellir og er fínasti skáli, kostar bara 5000 kr nóttin og örugglega gaman fyrir ís- og fjallamennskuþurfandi hópa að dvelja í. Upplýsingar eru á þessari síðu http://www.isafold.de/diverses/modruvellir.htm

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.