Re: svar: Lóndrangar

Home Forums Umræður Klettaklifur Lóndrangar Re: svar: Lóndrangar

#47969
Ólafur
Participant

Það er fínasta blanda af klettaklifri og ósviknu íslensku drulluspóli að fara á Lóndranga. Standard leiðin fer uppá stóra stallinn frá austanverðu. Síðan er fylgt augljósri gróf/sprungu uppá topp þaðan. Mér skilst að “suðurfésið” á dranginum hafi einnig verið klifið og er það sennilega nokkuð strembnara.