Re: Arab skipstjóri skutli sínum skaut út á svartan sæ…

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Helgin Re: Arab skipstjóri skutli sínum skaut út á svartan sæ…

#52353
Skabbi
Participant

Við Bernd fórum í Glymsgil í fimbulfrosti í morgun. Áin er við það að verða vel frosin, en er eiginlega ennþá illa frosin. Vantar herslumuninn. Við fórum því ekki alla leið inn að Glym, þó að ég útiloki ekki að það hefði verið hægt ef viljinn hefði verið til staðar. Og kannski vöðlur.
Þess í stað staðnæmdumst við við Hval 1, og klifum hann upp á brún, auk Þorsta þar fyrir ofan. Mér sýndist Hvalur 3 einnig vera í firnagóðum aðstæðum. Allar styttri leiðir utar í gilinu voru í mjög góðum aðstæðum.

Eyjafjöllin á morgun ef veður heldur.

Allez!

Skabbi