Vesturlæna

Leið númer 6

Gráða 1 – 150 m –
FF: Ari Trausti Guðmundsson og Olgeir Sigmarsson, maí 1979.

Snjólæna norðan við leið nr. 1 sem liggur upp á Skarðshyrnu.

 

Klifursvæði Skarðsheiði
Svæði Skarðshyrna
Tegund Alpine
Merkingar

8 related routes

Annar hringur með hringekjunni

Leið númer 1b á mynd

WI 3 R

FF: Matteo Meucci og Marco Porta 22. apríl 2017

 

Leiðir í SA hlíðum

Leiðir merktar inn sem 8

Gráða 1 – 100-200 m

Fjölmargar snjólænur liggja upp SA-hlíðar Skarðshyrnu, allar þó af svipuðum erfiðleikum. Þessi afbrigði eru velþekkt.

 

Vesturlæna

Leið númer 6

Gráða 1 – 150 m –
FF: Ari Trausti Guðmundsson og Olgeir Sigmarsson, maí 1979.

Snjólæna norðan við leið nr. 1 sem liggur upp á Skarðshyrnu.

 

Um Skessusæti og Miðhrygg

Leið merkt sem 7.

Gráða I/II – 400 m – 1-3 klst.
FF: Ari Trausti Guðmundsson, 1969.

Fjölbreytt og skemmtileg leið. Frá Efraskarði er stefnt á Skessusæti (702 m), sem er lítill tindur undir Miðhrygg og er öllu léttara að koma austan að honum en vestan. Haldið er upp og yfir tindinn og að miðhrygg Skarðshyrnu. Upp hrygginn eru afbrigði að vali fjallamannsins. Þá er oftast farið austan við hrygginn.

 

A-Miðgil

Leið merkt sem 5.

Gráða 2 -200 m – 1-2 klst.
FF: Ari Trausti Guðmundsson og Peter Wiedthaler, apríl 1975.

Falleg auðrötuð leið, aðallega snjóleið með nokkrum léttum íshöftum

Best er að ganga niður leið 37 um Skessusæti

 

Giljagaur

Leið merkt sem 4.

200M. Berg klifur leið í gráðu III. með nokkrum IV. hreyfingum. Hóflega erfið klifurleið. Tvær fyrstu spannirnar eru erfiðastar með hreyfingum af IV. gráðu í þeirri efri. Leiðin byrjar hægra megin á rifinu, í mynni A-Miðgils. 3-4 spannir með léttara brölti í efri hluta. Þokkalegar megintryggingar.

Best er að ganga niður leið 37 um Skessusæti

FF. Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson 25. sept. 1982

Athugið að þetta er ekki eini Giljagaurinn á landinu, það er einn inni í Þórsmörk og annar í Fljótshlíð, passið að rulga þeim ekki saman. Ísalp telur að nú sé nóg komið af Giljagaurum, nú sé komið að öðrum jólasveinum sem ekki hafa fengið leiðir nefndar eftir sér, s.s. Hurðaskellir eða Skyrgámur.

V-Miðgil

Leið merkt sem 3.

Gráða: 2/3 -200 m – 2-3 klst.
Fyrst farin: Jón Geirsson og Snævarr Guðmundsson, 3. jan. 1982.

Mjög falleg klifurleið upp vestara gilið af tveim sem ganga upp á tind Skarðshyrnu. Auðrötuö. Brött höft í neðri hluta leiðarinnar.

Best er að ganga niður leið 37

 

Með Skessubrunnum um Vesturhrygg

Leið merkt inn sem 1a

Læna þessi telst við vetraraðstæður ná 1. gráðu að erfiðleikum, en bæta má því við að skíðað hefur verið niður hana.

Þægilegast er að ganga niður eftir leið 37 um Skessusæti

 

Skildu eftir svar