kgb

Svör sem þú hefur skrifað

19 umræða - 1 til 19 (af 19)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Duglegir menn í Tindfjöllum #56884
    kgb
    Participant

    Takk fyrir hvatninguna. Þetta var stórfín ferð hjá okkur Hálfdáni, bæði skemmtileg og miklu afkastað þrátt fyrir 3 unga ferðalanga sem einnig höfðu gaman af. Hefði helst vilja stoppa lengur og klára að mála skálann eða bara ganga á fjöll.

    Hvet svo flesta til að drífa sig upp í Tindfjöll og eiga þar góðar stundir – munið bara að ganga vel um skálann.

    Kveðja,
    Kristján

    in reply to: Vantar blað í Simond Piranha #55430
    kgb
    Participant

    Fór að ráði Palla og fann tvö ný blöð í Útilíf Glæsibæ. Snilld.

    Þar eru blöð í fleiri tegundir af öxum.

    Þakka.

    Kristján

    in reply to: Vantar blað í Simond Piranha #55415
    kgb
    Participant

    Vantar tvö blöð.

    Takk fyrir svörin.
    Kristjan

    in reply to: Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast! #54264
    kgb
    Participant

    Ekki hika við að hafa samband þótt sért ekki útlærður iðnaðarmaður – í Tindfjallaferðinni þurfum við hendur við að flytja grót og bind járn.

    in reply to: Hraundragi #52978
    kgb
    Participant

    Olli, ég væri einnig vel til í að koma með að skila pelanum. Lengi langað þarna upp…

    in reply to: Tindfjallaskáli kominn í bæinn. #52966
    kgb
    Participant

    Takk sömuleiðis. Langar að þakka Reykjavíkur-, Garðabæjar- og Árborgarsveitinni fyrir veittan stuðning. Einnig Hallgrími og Magnúsi í Miðdal fyrir hjálpina og gestrisni og Tomma fyrir gröfuna.

    Bíð spenntur eftir myndum.

    Með kveðju,
    Kristján

    in reply to: skjálftinn #52824
    kgb
    Participant

    Var með Helga í Stardalnum 2000. Sat þá á stuðlabergsstöpli og tryggði Stefán P. sem var í miðri leið. Þokkalega feginn að stuðlabergið sveiflaðist ekki meira….

    in reply to: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? #52065
    kgb
    Participant

    Góðir. Tek undir með Palla og fleirum sem vilja halda í skálann. Það væri synd af gefa hann frá sér. Vonandi tekst okkur að mynda stemmingu í kringum skálann.

    Verst að ég komst ekki á fundinn góða. Vill gjarnan vera þátttakandi. Skv. síðu klúbbsins er ég í skálanefnd… nefnd sem hefur ekki hisst lengi lengi né verið endurnýjuð um margra ára skeið.

    Kristján

    in reply to: Kynningarkvöldið #51696
    kgb
    Participant

    Húrra fyrir nýrri stjórn og öllum þeim sem koma að ársritinu og starfi Ísalp undanfarið.

    in reply to: Hrútfjallstindar! #51362
    kgb
    Participant

    Góður. Við sjáumst kanski. Við verðum 5 sem stefnum á Sveinstind og skíða/bretta niður Virkisjökul.

    Kristján

    in reply to: Hrútfjallstindar! #51360
    kgb
    Participant

    Stefnan var á Öræfin næstu helgi en veðurspáin er ekki beisin. Aftur á móti er spáin fyrir sumardaginn fyrsta er miklu betri.

    Ekki alveg maður í fjóra Hrútfellstinda… sýnist Sveinstindur með uppgöngu að austanverðu verða fyrir valin.

    Kristján G.

    in reply to: Ferð á Hrútsfjall!! #48679
    kgb
    Participant

    Búinn að vera spá í þessa ferð og bíða eftir fréttum af henni. Miðað við veðurspánna þá sýnist mér þetta vera gáfuleg ákvörðun. Ekki ósennilegt að maður komi með þegar að því kemur að fara austur. Viltu að ég skrái mig og þá frekar hætti við ef maður kemst ekki einhverja hluta vegna?

    in reply to: Botnssúlnaferðin #48516
    kgb
    Participant

    leitt að segja það en ég slaufa ferðinni á morgun, í því veðri sem verður þá, og nota frekar þennan bjarta laugardagsmorgun til að fara í dagsferð. Þó maður fari einn. Mestan áhuga hefði ég nú samt á Botnsúluferð með Ísalp, hefði hún verið færð til dagsins í dag… Nú ef veðrið breytist þá er aldrei að vita að maður komi á morgun.

    Annars gott framtak að hafa svona ferð á dagskrá. Mættu vera fleiri svona dagsferðir eins og þessi.

    kgb

    in reply to: Hvar má ég tjalda? #48042
    kgb
    Participant

    Þakka svarið Steinvör. Mér var ekki kunnungt um vef Náttúruverndar ríkisins. Nákvæmlega það sem ég var að reyna að finna.

    Alveg magnað. Fæ svar klukkutíma eftir að ég setti inn spurninguna á vefinn.

    Kveðja,
    Kristján

    in reply to: Skálamál #48001
    kgb
    Participant

    Tek undir tillögu Kalla. Tók nokkrar myndir af skálanum þegar við fórum upp eftir. Þær eru að finna undir „síður félaga“. Þar er einnig að finna smá verkefnalista sem ég hripaði niður eftir reyndir mönnum sem með í för voru.

    KGB

    in reply to: Skálarnir og nefndir ? #47992
    kgb
    Participant

    Sunnudagurinn er flottur. Hittumst við Klifurhúsið kl. 9? Hvar finnum við þig Bárður?

    Kveðja,
    Kristján, gsm 8200412

    in reply to: Skálarnir og nefndir ? #47984
    kgb
    Participant

    Hér er kjörið tækifæri til að ákveða hvenær stefna skal að ferð upp í Tindfjöll að taka út skálan. Stebbi og Bárður, hvernig væri að drífa sig næstu helgi og gera lítið eitt formlega úttekt á skálanum? Við getum skilað henni hingað á vefinn til að fá umræðu um næstu skref?

    in reply to: dabbi einræðisherra #47891
    kgb
    Participant

    Held að það sé nú allt í lagi að lauma inn einhverju skopi inn á þessa síðu, sérstaklega á þessum degi. Alveg sama hvort það er pólítískt eður ei. Stórgóð mynd.

    in reply to: Bratti og Tindfjallaskáli – tilmæli #47721
    kgb
    Participant

    Mæli með að fólk verð að skrá sig í dagbók og taka gíróseðil í skálanum. Svo gæti klúbburinn áskilið sér rétt til að rukka þá sem ekki skrá sig þrefalt skálagjald. Það gæti virkað.
    Það er auðvitað vinna sem fylgir því að rukka inn skálagjöld ef fólk stendur ekki skil á greiðslum. Það kom fram á aðalfundinum af það hafi lítið verið reynt að rukka. Nú svo má athuga hvort ekki er hægt að fá rukkunarfyrirtæki í málið :-) Greiðandi greiðir allan kostnað vegna þess.

    Kveðja,
    Kristján

    ps. alveg opinn fyrir því að sitja í skálanefnd

19 umræða - 1 til 19 (af 19)