Ólafur

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 51 til 75 (af 142)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Olli búinn með 100 tindana. #51744
    Ólafur
    Participant

    Til allrar hamingju Olli! Þú ert þrautseigur andskoti, því verður ekki neitað.

    Hefði verið gaman að fara með í einhverja af ferðunum en maður er víst fjarri góðu gamni. Ég lofa hinsvegar að mæta þegar þú tekur 100 hæstu í Skandinavíu.

    -órh

    in reply to: Banff #51463
    Ólafur
    Participant

    Scheiße…hvernig endaði þetta með ísklifrarann?

    in reply to: Nýr leiðarvísir fyrir Stardal #51396
    Ólafur
    Participant

    Fleygurinn er ennþá í Hvíta deplinum – nema þá að Andri sé búinn að taka hann og setja í klifurminjasafnið sitt ásamt hnetunni sem var í þakinu á Óperu.

    in reply to: Nýr leiðarvísir fyrir Stardal #51388
    Ólafur
    Participant

    Kúl!

    Sprungan milli 7-up og Flagsins hefur líka verið klifruð og ég held að hún hafi verið gráðuð 5.9. Ég klifraði hana amk einhverntíma en veit fyrir víst að ég var ekki fyrstur. Minnir að það standi eitthvað um þetta í einhverjum gömlum fréttapistli.

    Hvað var það sem fór svona í taugarnar á þér í gamla leiðarvísinum Palli?

    ÓliRaggi

    in reply to: Ceuse #50578
    Ólafur
    Participant

    Fyrir þá sem finnst gaman að labba upp eins og eitt Þverfellshorn í upphitun þá er gaman að benda á að Sauratindar við Súðavík bjóða uppá slíka nálgun. Ceuse hvað…Sauratindar!

    in reply to: Þurrtólun í RVK #50527
    Ólafur
    Participant

    Þurrtólun!?? Er einhver með tips um hvar maður kemst í góða þurrskíðun þessa dagana?
    órh

    in reply to: Hvítasunnuhelgi #50519
    Ólafur
    Participant

    Hvað þarf íslensk fjölspanna klettaklifurleið að vera klifin oft til að teljast klassísk? Þrisvar? Eigum við ekki að segja að Saurgat Satans sé orðin klassíker!
    -ÓliRaggi

    in reply to: Tröppur í klettunum í Esjunni!!? #49979
    Ólafur
    Participant

    Mig dreymdi alltaf um að fá rúllustigana í Glæsibæ uppí Stardal. Nú er búið að stinga þeim aftur í samband og vonin dvínar…

    in reply to: Klifur í Bergen #49964
    Ólafur
    Participant

    Það er endalaust af klifursvæðum í Bergen, meira að segja nokkur sem eru í hjóla/strætó-færi. Einfalt er að fara í litla búð sem heitir ute.no og er ca. mitt á milli tourist info og ‘Korskirken’ (kirkja alveg niðrí miðbæ). Þar er hægt að kaupa klatreförer fyrir Bergen og í honum eru allar upplýsingar sem þú þarft. Leiðarvísirinn er mjög flottur, allur bundinn inn í plasthúðaðar síður og fínerí.

    Þú finur líka linka í búðir þar sem þú getur pantað leiðarvísinn ef þú skoðar síðurnar sem jón haukur var að benda á.

    órh

    in reply to: Saurgat Satans #49820
    Ólafur
    Participant

    P.s.: Uppúr farangri helgarinnar kom forláta pottur sem ég á ekki. Ef einhver sem var á Hnappavöllum saknar pottsins þá er ég með hann.

    olafurr hjá ru.is
    GSM: 8678805

    in reply to: chamonix/gisting #49797
    Ólafur
    Participant

    Ekki gera lítið úr Rúnari…hann er góð eldabuska og þvottaþræll. Hversvegna heldurðu að hann hafi fengið að koma með til Perú?

    ó

    in reply to: Vantar Tjaldbúðastól #49784
    Ólafur
    Participant

    Vantar sem mest af ónotuðu útilegu- og klifurdóti gefins, eða fyrir lítið.

    in reply to: Hrútfjallstindar – myndasaga #49778
    Ólafur
    Participant

    Ótrúlegt að sjá hvað jöklarnir hafa rýrnað þarna fyrir austan (og reyndar annars staðar á landinu). Ég er ekki gamall maður en það eru samt orðin 10 ár síðan ég fór þarna fyrst.

    Tindarnir eru orðnir berari, sprungurnar stærri og opnari og falljökullinn milli Eystra- og Vestra Hrútsfjalls er á góðri leið með að hverfa. Mað sama áframhaldi verða íslensku jöklarnir varla skugginn af sjálfum sér eftir 20-30 ár.

    Samt flott – órh.

    in reply to: Bolta eða ekki Framhald #49735
    Ólafur
    Participant

    Fékk mér labbitúr þarna uppeftir í vikunni að skoða og hitti reyndar fyrir Robertino og félaga. Kíkti reyndar á þetta svæði fyrir mörgum mörgum árum og klifraði eina leið og tvær eða þrjár línur í toprope. Ég held að það hafi líka verið klifraðar þarna nokkrar leiðir fyrir löngu síðan en veit ekki til að það hafi verið skráð. Þ.a. svæðið er ekki alveg nýtt.

    Svæðið stenst ekki samanburð við „gamla“ Stardal en vissulega má klifra þarna nokkrar leiðir … og bolta. Ég sá ekki betur en að það sé vel hægt að klifra þarna með dóti en etv eru sprungurnar ekki eins góðar til trygginga og í Stardalnum. Sprungurnar í vestara þilinu sýndist mér samt vera einfalt að tryggja náttúrulega.

    Ef menn vilja endilega setja upp boltað svæði þarna þá er mér sama. Þetta svæði á sér ekki hefðir og sögu eins og Stardalurinn. Það breytir samt ekki því að það er vel hægt að klifra þarna flestar augljósustu línurnar og tryggja með dóti.

    ÓliRaggi

    ps. Setti inn nokkrar myndir af „nýja“ svæðinu á http://netlab.ru.is/gallery/stiftamt

    in reply to: Stefán Glófax #49671
    Ólafur
    Participant

    Það er athyglisvert að báðir glófaxarnir eiga „drei Kinder“. Greinilega miklir fjölskyldumenn á ferð.

    in reply to: Rauðiturninn klifinn í dag #49661
    Ólafur
    Participant

    Bláfjöll i gær, Búahamrar í dag. Ísland – bezt í heimi?

    in reply to: Ný stjórn? #49610
    Ólafur
    Participant

    Auðunn Georg Ólafsson hefur verið skipaður formaður. Framsóknarflokkurinn á tilkall til embættisins.

    ó

    in reply to: Takk fyrir frábæra helgi #49557
    Ólafur
    Participant

    Svar við spurningu Árna: Tónlistin – 20 zentimeter gerði stormandi lukku um helgina.
    órh

    in reply to: Snjór Snjór Snjór í kortunum #49521
    Ólafur
    Participant

    svona svona…það er nú ekki eins og allir sem spila með KR séu búsettir í westurbænum.

    Árbæjarliðið tekur á móti öllum sem hafa áhuga á að ganga í okkar raðir. Einu kröfurnar eru að menn kunni Fylkislagið, finnist Skallaborgarar bestir og viti sem er að Bláfjöll eru í Árbæjarhverfi.

    ó

    in reply to: Málsfarsdeildin mótmælir #49468
    Ólafur
    Participant

    Heil Helgi!

    Láttu ekki þessa ambögusmiði og únlínga buga þig. Ef þetta fólk hefði ráðið hér ríkjum fyrir 100 árum værum við öll talandi dönsku. Við megum þakka fyrir að þetta fólk hefur ekki gefið fleiri leiðum nafn. Eigum við ekki barasta líka að breyta nöfnum á gömlum leiðum yfir á ensku? Getum byrjað á Stardal: „the resurrection“, „the scratch“, „straight ahead“. Nú eða skellt okkur á „Buttonfields“ í leiðir eins og „the slaughterhouse“, „tango on the corner“ eða „wilderness-boogie“.

    Hnuss,
    órh

    in reply to: Botnsúlur og Glymsgil #49374
    Ólafur
    Participant

    Svei…ég ætti kannski að fara að hlusta á tengdamömmu áður en það er of seint.

    ó

    in reply to: Ísklifur undir Eyjafjöllum. #49352
    Ólafur
    Participant

    Er ekki réttast að þú dustir rykið af græjunum og klárir þetta bara sjálfur Dagur?

    Kv – ÓliRaggi

    in reply to: Glymsgil og fleira #49275
    Ólafur
    Participant

    Ég labbaði upp með brún Glymsgilsins og tók slatta af myndum af aðstæðum…kem þeim inná isalp.is á morgun.

    órh

    in reply to: Grafarfoss og kókostréð #49249
    Ólafur
    Participant

    Einu sinni fyrir margt löngu klifraði ég Kókostréð með Degi Halldórs. Þegar klifrað var síðasta meterinn uppá brún kom í ljós ca hnefaþykk lárétt sprunga gegnum kertið þ.a. það stóð í raun bara uppá endann. Sprungan var reyndar gömul, þeas ekki af okkar völdum.

    Við vorum samt svo ungir og vitlausir að við fórum báðir upp.

    –órh

    in reply to: Hálfkláruð leið …… #49206
    Ólafur
    Participant

    Úps…ég biðst afsökunar.
    Ég hef þá greinilega misskilið greinina á ‘þínum síðum’:
    „Upphafið af paradís….Nei við féllum á tíma og náðum ekki að komast alla leið í paradís.“

    Ég sem var að vona að ég gæti espað upp einhverskonar kapphlaup með þessum myndatexta.

    -órh

25 umræða - 51 til 75 (af 142)