Ágúst Þór Gunnlaugsson

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 101 til 125 (af 193)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Jólajóla! #53360

    Smá rapport hérna.

    Ég skrapp í bíltúr áðan upp í Hvalstöð. Aðstæður eftir hlákuna eru svona lala.

    Það var mikill snjór utan á klettunum þannig að erfitt var að greina ís úr mikilli fjarlægð.

    Smá ís í búhömrum. 55° klifranlegar að öllum líkindum.

    Sá ekkert inn í Eilífsdal vegna snjókomu. Ætti að vera í fínum málum þrátt fyrir stuttan hitakafla.

    Ekkert að gerast í Ýring, Óríon ennþá feitur. Lítið í Flugugili.

    Smávegis af ís í Múlafjalli, sá ekki Stíganda en Rísandi ætti að vera vera klifranlegur þó að mjór sé. Ábyggilega mjög skemmtilegar mix-aðstæður.

    (Birt án ábyrgðar (eins og lottótölurnar:) )

    Þannig er nú það.

    Góða skemmtun í klifrinu á morgun. Sjáumst í glögginu.

    Ági

    in reply to: Flottar myndir úr ölpunum #53298

    Svo er þessi síða svakaleg.

    http://www.gdargaud.net/Climbing/index.html

    Þessi ljósmyndari hefur klifrað um allan heim og einnig verið mikið á Suðurskautinu.

    Kveðja úr prófatörn

    Ági

    in reply to: Hetjudáðirnar framundan #53209

    Ég horfi til Öræfajökuls.

    Eftir að hafa verið mikið á Svínafellsjökli í sumar og glápt á Hrútfjallstinda, sýnist mér sem það sé alveg hægt að gera nýjar leiðir þar. Í það minnsta má búa til ný afbrigði af eldri leiðum. Ég býst þess vegna við því að stefna austur í febrúar/mars.

    Einnig væri mjög gaman að komast á Skarðatind, þó að það væri bara eftir hefðbundnu leiðinni upp úr Morsárdal.

    Kv. Ági

    in reply to: Mjúlafall #53197

    Ég ætla að veðja á Villingadal í fyrramálið.

    in reply to: Gripteip og axarsköft #53180

    Töff. Ég hef notað hokkýteip sem ég fékk í Everest. Það hefur virkað ágætlega en mætti vera gripmeira.

    Ági

    in reply to: Alpinist farið :( #53135

    Nei djö…. Mjög leitt að heyra.

    in reply to: Silvretta bindingar #53118

    Ég er með gömul fjallaskíði sem eru með Silvretta 300 bindingum. Virka fínt fyrir alstífa skó. Engar hælaupphækkanir takmarka brattann á þeim brekkum sem hægt er að stíma upp, svo er auðvitað vita vonlaust að skíða niður á ísklifurskónum.

    Ági

    in reply to: Á búnaðarbazarnum ætla ég að selja… #53087

    Grivel G12, New matic binding. Notaðir einu sinni. Broddarnir sem geta allt!
    Verð 12.000 kr.

    Five ten Spire klifurskór. Lítið notaðir. Stærð 42,5. Verð 3.500 kr.

    Kv. Ági

    in reply to: Hraundrangi – drög að leiðarvísi tilbúin #53060

    Flottur leiðarvísir. Vel gert.

    Kv. Ági

    in reply to: 8 farast í snjóflóði á Mont Blanc #53032

    Tad voru enn ad falla ishlunkar ad falla tarna nidur brekkuna i gaer. Saum einn mola a staerd vid gott hjolhysi sem hrundi nidur brekkuna og endadi beint undir Tacul Triangle.
    I gaermorgun voru leidsogumenn ad fara upp brekkuna i „konnunarleidangur“ med kunna. Annars var Cosmiques Arête fjandi fin i gaer.

    Kv. Agust og Atli , ekki med summit fever.

    in reply to: Hnappavallamaraþon #52911

    Fjallaleiðsögumenn kíkja örugglega á laugardagskvöldið. Hér fyrir austan er botnlaust að gera þannig við komum ekki fyrr en um kvöldmat.

    Kveðjur úr Skaftafelli.
    Ági

    in reply to: Heljaregg #52885

    Ég held að múkkafælan sé ennþá til heima. Algjört möst að nota áður en að skriðið er í gegnum æluhreiður.

    in reply to: Ævintýradagur í Skarðsheiði #52663

    Tær snilld. Ekki hægt að segja annað.

    Ági

    in reply to: Meira festival #52456

    Ég ætla austur á fimmtudag.

    Ági

    in reply to: Klifurgraðir ísgrísir #52428

    Varðandi ís á S-Austurhluta landins.
    Ég var um helgina stutt frá Kirkjubæjarklaustri og þar var nóg af ís, Sexí og Hertoginn af Kolbeinsey virtust í aðstæðum. Á sunnudaginn gekk ég inn í Hörgsárgljúfur sem er við bæinn Múlakot, aðeins um 5 mínútna akstri frá Klaustri. Það var töluvert af ís í gljúfrinu þrátt fyrir asahláku á föstudeginum. Í gljúfrinu er ógrynni leiða í en flestar eru þær sennilega einnar spanna leiðir i mjög fallegu umhverfi. Á góðum degi er mögulegt að ná mörgum leiðum. Ég náði aðeins að ganga inn um rétt hálft gljúfrið en hafði mjög gaman af.
    Skellti inn nokkrum myndum á http://www.agust.smugmug.com

    Mæli með að menn kíki á þetta ef svo vildi til að menn ættu leið hjá.

    ný-ísklifursvæðakönnunarkveðja
    Ágúst

    in reply to: Sunnudagsmontið #52389

    Við Skabbi prófuðum einhverja örmjóa línu sem er við hliðina á Paradísarheimt, sem sagt ekki Skoruna heldur einhverja leið sem liggur upp hornið hægra megin við hana.

    Ég var komin 15-20 metra upp leiðina þegar að frekar óskemmtileg hrunsería byrjaði niður leiðina okkar sem einhverskonar mjó rás upp klettinn. Nokkrir molar í handboltastærð flugu framhjá hausnum og þá sagði ég stopp.

    Skoran var megablaut, ekki bara fyrsta spönn sýndist okkur. Svo var hrun í Paradísarheimt ekki til bæta sjálfstraustið.

    En Eyjafjöll er mega flott svæði. Skelli myndum af tilþrifum strákana inn á netið við tækifæri.

    Ági

    in reply to: Snjóalög í Botnsúlum #52348

    Nýliðar HSG voru þar síðustu helgi. Það var víst allt á kafi í snjó í lægðum og giljum. Melar stóðu hins vegar berir uppúr. Sjá hér http://hsg.smugmug.com/gallery/4236561#248426240

    Ætla menn ekki að lemja ís á morgun? Vantar klifurfélaga fyrir laugardag. S: 695 3310

    Ági

    in reply to: Fjölspannaleiðir fyrir byrjendur #52075

    Var að fá Alpinist rjúkandi heitt úr prentsmiðjunni áðan. Gríðarlega fott grein um Köldukinn eftir Ines Papert.

    Ági

    in reply to: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast #51874

    Scarpa Vega Plastskórnir eru fjólubláir. Ofurtöff og með nýjum reimum. Hefurðu áhuga Árni?
    Þeir fara á 4000 kall.

    Ágúst

    in reply to: Búnaðarbazar: Til sölu / óskast #51865

    Mæti með gamla Scarpa Vega plastskó í stærð 46.

    kv. Ági

    in reply to: ísaxir #51850

    Þessir fetlar frá BD heita Lockdown og eru nokkuð góðir. Örugglega hægt að kaupa þá á netinu.

    Svo eru til ágætis axir frá Grivel sem heita Alp wing og eru ekki ósvipaðar Simond Naja.

    Annars hef ég séð Naja í fetlalausri útgáfu. Minnir að hillujárn og teppateip hafi komið þar við sögu.

    kv. Ági

    in reply to: Axarblöð – piranha #51767

    Piranha eru snilldar axir.

    Eini gallinn við þær var hversu mikið maus er að skipta um blöð miðað við Black Diamond og Charlet Moser. Svo festust blöðin svo gríðarvel í ísnum að það gat verið vandamál að ná þeim út (sem eitt sinn endaði með brotinni tönn). Samt frábær balance í sveiflunni og allt það. Ég held ég eigi enn auka hamar á Piranha ef einhvern langar að losna við hyrnuna.

    kv. Ági

    in reply to: On the cover of the rolling stone.. #51757

    Ég sá að það var smá ís byrjaður að myndast í Grafarfossi í morgun! En það litla sem hefur myndast verður líklegast horfið á fimmtudag.

    kveðja
    Ági á Ísvaktinni

    in reply to: Olli búinn með 100 tindana. #51748

    Til hamingju Olli með að hafa klárað þetta risaverkefni.

    Kveðja. Ágúst Þór

    in reply to: Klifursumarið gert upp 10.okt #51725

    Skemmtileg myndasýning í gær. Sérstaklega gaman af myndum Dúllarans frá Yosemite.

25 umræða - 101 til 125 (af 193)