X-games meistari

Home Umræður Umræður Skíði og bretti X-games meistari

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47438
    0704685149
    Meðlimur

    Halldór Helgason að gera það mjög gott á X-games.

    Þetta er frábært hjá honum.
    Þessi árangur er virkilega flottur, skil ekki afhverju Jóhanna eða Ólafur Ragnar senda honum ekki kveðjur í blöðunum eins og öðrum Íslendingum sem vinna til verðlauna á stórmótum.

    Hér er hægt að sjá stökkin, ég held að þetta sé jafnvel ekki hægt á telemarkskíðum…

    http://espn.go.com/video/clip?id=4873682

    Vona að honum gangi vel í kvöld í hinni stökkgreininni, kann ekki að nefna þetta almennilega.

    Bassi

    #55107

    KLIKKAÐ!!!! Djöfull er gaman að heyra þetta. Ef það verður ekki fjallað um þetta í fréttum hér heima þá er eitthvað mikið að.

    Til hamingju Halldór!

    p.s. nú eigum við gulldreng ;)

    #55109
    1001813049
    Meðlimur

    Magnað! Ég reikna með að Fálkaorðan fari beint um hálsinn á honum og móttöku í Smáralind þegar hann kemur heim.

    Til hamingju Halldór.

    #55110
    Gummi St
    Participant

    Þetta er flott hjá honum, ætli það þurfi að binda bolta í fangið á honum til að hann komist í íslenska fjölmiðla?

    #55112
    Skabbi
    Participant

    Glæsilegt hjá stráksa! Þeir bræður eru orðnir ansi stór nöfn í geiranum sem er æðislegt.

    Áður en menn hópast með kyndla og kvíslar upp í Efstaleiti bendi ég á að Dóri fékk álíka langa umfjöllun og nýkrýndir Evrópumeistarar Frakka í kvöldfréttunum RÚV í gær. Einnig var tekið viðtal við hann áður en hann fór út.

    allez

    Skabbi

    #55113

    Hann var flottur, náði á baksíðun á Mogganum í dag.

    #55114
    Anonymous
    Inactive

    Ég vona svo sannarlega að þeir fari nú ekki að fá Fálkaorðu. Það er löngu búið að afskræma það fyrirbrigði. En sannarlega frábær árangur hjá þeim. Til hamingju strákar!!!!!

    #55115
    Sissi
    Moderator

    Líka rétt að benda á að snjóbretti eru svo merkileg að X-Games eru mun sterkara en Ólympíuleikarnir. Halldór er að smóka menn þarna sem eru með heilu fatalínurnar og snjóbrettalínurnar skírðar eftir sér.

    Fáir vita líka að Ísalpari hefur verið í verðlaunasæti á X-Games.

    Sissi

8 umræða - 1 til 8 (af 8)
  • You must be logged in to reply to this topic.