Umgangur um landið

Home Umræður Umræður Almennt Umgangur um landið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45407
    Sissi
    Moderator

    Glæsilegt að tala við þessa Saga Film kalla, sjálfsagt ótrúlega frústrerandi að keyra alla leið þarna austur til að láta einhvern lúða eyðileggja ferðina. Eitt það eftirminnilegasta sem ég hef gert amk. að fara þarna upp.

    Nema hvað – félagar mínir lentu í því í fyrra að vera meinað að hjóla Laugaveginn (nei – ekki í Reykjavík). Töluðu við einhvern gæja inni í Laugum, útskýrðu fyrir honum að þetta væri ekki þjóðgarður ofl., engar skemmdir hlytust af þessu, hestamenn færu um þetta svæði að vild ofl. en allt kom fyrir ekki.

    Lögðu á endanum af stað undir skömmum og hótunum um lögsókn. Mér skilst að það sé ekkert í lögum sem gefur heimild til að takmarka hjólreiðar utan þjóðgarða svo lengi sem menn halda sig á stígum. Þekkir einhver ykkar til þessara mála? Kannski að Skúli nenni að leiða okkur í allan sannleika um þessi mál? ;)

    Friður.
    Sissi

    #48607
    2806763069
    Meðlimur

    Hver er svo endirinn á þessu máli. Fengu strákarnir amk bensínpeninginn frá kvikmyndarisunum?

    #48608
    0405614209
    Participant

    Umræðan fór aldrei út í bensínpeningaumræður.

    #48609
    0704685149
    Meðlimur

    Menn komust þó í Spaugstofuna þótt þeir næðu ekki topnum.

    #48610
    Siggi Tommi
    Participant

    Ég frétti af því.
    Við hljótum að vera ánægðir með að komast í ríkisfjölmiðlana sem og á síður hasarfréttablaða.

    Fatman og Hróbjartur…

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.