Nýjar forsíðumyndir

Home Umræður Umræður Almennt Nýjar forsíðumyndir

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45211
    0309673729
    Participant

    Næstu tvær vikurnar verða nýjar forsíðumyndir hér í boði Ágústar Þórs. Stórfínar myndir.

    #50499
    Páll Sveinsson
    Participant

    Fríklifruðu ekki B.B. og félagar aðra leið í Fallastakkanöf um árið. Tvær fyrstu spannirnar voru vinstramegin við orginalin og svo var síðasta spönnin sú sama?

    kv.
    Palli

    #50500
    0309673729
    Participant

    Ég uppfærði myndatextann, rétt skal vera rétt.

    #50501
    Gummi St
    Participant

    Flottar myndir hjá þér Ágúst!

    Gaman að sjá svona myndashow… það væri gaman ef fleiri myndu gera það sama…
    hvað eiga þessar myndir að vera? 800×294
    ég get líka alveg hent einhverju saman ef þið hafið áhuga

    mbkv, Gummi St.

    #50502
    0309673729
    Participant

    Já ég tek undir að það er gaman að sjá nýjar og ferskar myndir hér.

    Til að fá forsíðumynd birta er best að senda mér frummyndir á helgiborg@fjallamennska.is, ég sníð þær til fyrir forsíðuna, skerpi og laga liti ef þarf.

    Sendið endilega upplýsingar um hvenær myndin var tekin, við hvaða tilefni, o.s.frv. Stutt frásögn má gjarnan fylgja með, ekki síst ef hún er hnyttin.

    Athugið að senda einungis inn allgóðar fjallamyndir sem eiga skilið að birtast á forsíðu isalp.is. Öðrum myndum verður hafnað.

    með kveðju
    Helgi Borg

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.