Ný leið í Eilífsdal, Ópið

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Ný leið í Eilífsdal, Ópið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #47359
    Siggi Tommi
    Participant

    Fórum þrír hressir (ég, Robbi og Guðjón Snær) í Eilífsdal í ískulda og mannaskítsveðri og fórum þar nýja leið hægra megin við Þilið. Hafa einhverjir horft til hennar hýru auga í gegnum árin en ekki er vitað til að hún hafi verið reynd áður.
    Fékk hún heitið Ópið og gráðast WI5+/6, M5 ca. 95m.

    Ég beilaði á leiðslu seinni spannarinnar eftir að hafa komið öxinni í dingludanglið. Þar sem næsta brúklega trygging var ca. 5m til hliðar við mig og fáránleikinn í hreyfingunni yfir í kerti’ með eindæmum bugaðist mitt meyra hjarta og ég bakkaði niður. Var með ömurlega grjóttryggingu fyrir framan mig en hún hefði ekki haldið blautum skít í poka svo ég bakkaði niður í skrúfuna og seig niður (tryggingin poppaði svo út um leið og línan strekktist á henni).
    Róbert, sem þekktur er fyrir að hafa enga skynjan á virði lífs síns og lima spreytti sig svo í kjölfarið og tókst af mikilli snilli að jóðla sér upp á topp í eins hvössu veðri og við höfðum nokkurn tímann lent í í ísklifri.
    Við Guðjón eltum svo upp án stórvandræða þó þetta hafi verið megafunky, ógeðslega pumpandi og með freðna fokkíngs putta.
    Síðustu hreyfingarnar upp á brún voru steiktar og fjúkið svo mikið að ég klifraði síðustu 5 hreyfingarnar með lokuð augun. Geri aðrir betur… :)

    Sjá nokkrar myndir á:
    http://isalp.is/route.php?op=p&t=1#g1
    Annars kemur meira hresst efni á Picasa síðuna mína í vikunni.

    #53881
    0112873529
    Meðlimur

    Til hamingju með þetta strákar massa flott leið. En það voru fleyri sem fóru í Eilífsdalinn í dag ég Doddi og Örvar. Firsta planið vara að fara inn í Brinjudal og klifra Ýring en var hann ansi íslaus þannig að við brunuðum inn í Eilífsdal þar sem ís var pottþétt að finna. Tríó varð fyrir valinu og var það í ágætis kertuðum aðstæðum. Semsagt tær snild : )

    Kv Danni

    #53882
    Sissi
    Moderator

    Geðveikt, til hamingju. Fannst reyndar ólíklegt að menn hefðu skellt sér í Humarveisluna miðað við að stormkúfurinn yfir Esjunni var svo ógurlegur í morgun að lítil börn fóru að grenja.

    Fannst ykkur þetta of létt til að fara í góðu veðri eða?

    Hardcore stöff.

    SF

    #53883
    2303842159
    Meðlimur

    úff
    næss
    crazy

    kv
    Haukur

    #53884
    0801667969
    Meðlimur

    Sæmilega gert. Hefði reyndar sjálfur gert þetta aðeins öðruvísi. T.d. ekki sneitt svona mikið framhjá kertinu. Hefði klifrað það allt. Þetta kemur allt með æfingunni strákar.

    Kv. Árni Alf.

    #53885
    Anonymous
    Inactive

    Sælir og til hamingju með leiðina strákar. Er ég að verða of soft eða var Palli eitthvað með í ráðum þegar leiðin fékk gráðu??? Mér sýnist þetta á myndum vera solid 6-a ef ekki meira!!!
    Olli

    #53886
    2806763069
    Meðlimur

    Flottir!

    Ólíklegt að ópin ykkar hafi heyrst langt í rokinu í gær!

    kv.
    Softarinn

    #53887
    Páll Sveinsson
    Participant

    Flottir!

    kv.
    Palli

    #53888
    Stefán Örn
    Participant

    Glæsilegt piltar.

    Hlakka til að sjá fleiri myndir.

    Hils,,
    Steppo

    #53889
    Freyr Ingi
    Participant

    Nohh!

    Það er bara svona.

    Fleiri myndir óskast af þessum stórverkefni.

    Kv,

    Freysi

    #53890
    AB
    Participant

    Myndir, myndir, myndir, plííís.

    Þetta er svakalega fullorðins!

    Kveðja,

    AB

    #53891
    2308862109
    Participant

    Svaðalega töff leið.
    Respeact

    Dóri

    #53892
    0311783479
    Meðlimur

    Flott leid kappar!

    H

    #53893

    Hahaha… „Róbert, sem þekktur er fyrir að hafa enga skynjan á virði lífs síns og lima spreytti sig svo…“ Robbi kallar ekki allt ömmu sína í þessum efnum, það er ljóst. En þið eru allir snillingar, vel af sér vikið. Gaman að fá svona harðkjarnaleið í flóruna.

    Þumlar upp!!

    #53894
    Siggi Tommi
    Participant

    Jæja, hættið að ýta á F5 krakkar því biðin er á enda. :)
    http://picasaweb.google.com/hraundrangi/OpiIEilifsdal#

    67 myndir af æði misjöfnum gæðum en stemning í þeim öllum og textarnir vonandi sæmilega hressir.

    Verðið að lifa við það að ansi margar þeirra eru keimlíkar en það var bara allt of erfitt að velja úr þeim rúmlega 200 sem voru teknar þennan daginn.

    #53895
    Skabbi
    Participant

    Vá!

    Ska

    #53896
    1704893069
    Meðlimur

    Þetta er rosalegt!! Massa flott leið! Til hamingju ^_^

    #53897
    Páll Sveinsson
    Participant

    Þetta gerist nú ekki meira 2007 en þetta.

    Hrikalega flott klifur.

    kv.
    Palli

    #53898
    gulli
    Participant

    Sjííííís, þessar myndir eru of flottar! Glæsilegt!!!!!

    Kveðja,
    Gulli

    #53899
    Smári
    Participant

    Þetta er svakaleg leið strákar! Til hamingju með Ópið

    Smári

    #53900
    0112873529
    Meðlimur

    Suddalega flottar myndir og leiðin er bara mögnuð.

    Danni

    #53901
    2806763069
    Meðlimur

    Tvær litlar athugasemdir við leiðarvísinn sem þú gerðir.

    Það sem þú kallar directinn af Einfara hefur gengið undir nafninu Tvífarinn og er alveg örugglega 4.gr og jafnvel nokkuð stíf fjórða (ég datt meira að segja í henni þegar ég var lítill). Er reyndar ekki með neitt á prennti þessu til staðfestingar en svona var alltaf talað um leiðina, back in the days!

    Þið eruð helvíti sterkir en mér finnst samt alveg borderline að setja bara WI 5 á Þilið. Leiðin hlýtur amk að vera 5+ jafnvel þó að maður sé að tala í P-gráðum.

    Annars suddalega flott hjá ykkur, eins og svo oft áður!

    Kv.
    Softarinn, meirari og meirari með hverjum deginum!

    #53902
    Anonymous
    Inactive

    Þetta er rétt hjá þér Ívar. Leiðin Tvífarinn er hægra megin í stálinu þegar maður kemur upp í Einfarann. Hún var frumfarin af mér og Magnúsi Gunnarssyni á árunum 1991-1992. Einfarinn er lang oftast farinn beint upp(eða leiðin til hægri í Y sem var á myndinni). Að fara vinstra megin er ekki oft gert þó maður hafi heyrt um það. Það er ein leið sem vantar þarna, það er leiðin á Eilífstind sem farinn var fyrir margt löngu af Palla, Hallgrími og ?? Palli getur sagt betur frá þeirri reynslu sem var víst svolítið krassandi ef mig minnir rétt.

    #53903
    Skabbi
    Participant

    Þetta er athyglisvert, ég hef lengi brotið heilann um það hvar þessi svokallaði „Tvífari“ væri niður kominn. Nú veit ég að það sem ég hélt að væri Einfarinn er í raun og veru Tvífarinn, magnað!

    Jólaklifur Ísalp 2007 hefur þá verið í tvær útgáfur af Tvífaranum, enda skiptist þessi efsta ísspönn í tvö algerlega aðskilin þil þann daginn. Þau voru svosem engar 3. gráður heldur. Reyndar hefði heitið „Eplatréð“ verið nær lagi þennan hrollkalda desemberdag, enda dingluðu menn af hverri grein eins og ofþroskaðir ávextir.

    Merkilegt þykir mér líka að Ívar telur Þilið vangráðað. Ég stóð í þeirri meiningu að Þilið væri benchmark fimma, sem allar aðrar fimmur á Íslandi ættu að miðast við.

    Skalinn í hausnum á mér var orðinn e-nvegin svona:

    Skítlétt: 3. gráða
    Strembið: 4. gráða
    Drullustíft eins og Þilið: 5. gráða
    Erfiðara en Þilið: líka 5. gráða

    Ekki furða að maður skíti í brækurnar þegar maður heyrir minnst á 5+, hvað þá 6!

    Allez!

    Ska

    #53904
    0311783479
    Meðlimur

    Var ekki Orion talinn benchmark fimman?

25 umræða - 1 til 25 (af 26)
  • You must be logged in to reply to this topic.