Myndir frá Ísklifurfestivali

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Myndir frá Ísklifurfestivali

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45551

    Ég ætlaði bara að þakka fyrir helgina. Laugardagurinn var frábær og ekki var síðra á sunnudeginum.

    Ég setti myndir frá báðum dögunum inná http://www.pbase.com/agustthor

    #50284
    Siggi Tommi
    Participant

    Sknilld. Góður dagur á laugardaginn alla vega.
    Greinilega eitthvað fámennara á sunnudag og öllu hlýrra, eða hvað?
    Alltaf gaman að klifra samt…

    #50285
    Anonymous
    Inactive

    Já við gömlu hundarnir eru enn að sleikja sárin(sem voru mjög fá) og nudda úr okkur mestu strengina(sem voru all nokkrir)
    Takk fyrir frábæran dag.
    Olli

    #50286
    1306795609
    Meðlimur

    „Greinilega eitthvað fámennara á sunnudag og öllu hlýrra, eða hvað?“

    Nei það var ekki hlýrra á sunnudeginum svo neinu nemi, snjóaði þurrum snjó við Súlurnar og ekki bráðnun í gangi. Hins vegar rigndi niðri í dal og því virka klifrarnir frekar slæptir á sunnudagsmyndunum. Þessi Eilífsdalur er greinilega algert fyrirbæri, heimavöllur íssins. Takk fyrir helgina.

    #50287
    Anonymous
    Inactive

    Það hefur nú oft verið gert grín af mér fyrir að aulýsa Eilífsdalinn um of í gegnum tíðina og er ekki laust við að maður fái smá uppreysn æru. Málið er að margir líta á Eilífsdalinn hornauga vegna snjóflóðahættu þar sem þessi staður er á venjulegum vetri(fyrir 1999) alger snjóakista. Ef snjóar eitthvað að ráði þarna eru menn sérstaklega beðnir að vara sig og halda sig algerlega frá öllum rásum og giljum. Annað er það sem hefur haldið mönnum frá dalnum er óþægilega langur gangur ef maður þarf að þramma inn allan dalinn.
    Olli

    #50288
    Siggi Tommi
    Participant

    Þetta labb er nú stórlega ofmetið þó þetta sé nú ekki beint „roadside“.
    Á góðum degi er maður ekki nema rétt um 1,5 tíma að labba þarna inn. 45mín inn að brekku og 45mín upp að leiðunum.
    Menn hafa bara gott af því fyrir þá snilld sem þarna er oftast að finna.
    Svo er jú oft hægt að príla þarna fram í apríl og jafnvel fram í maí á köldum dögum. Fórum bæði á sumardaginn fyrsta og á 1. maí fyrir 2 árum síðan.

    Vonum að þetta festival dragi fleiri í Dalinn en hingað til…

    #50289
    Anonymous
    Inactive

    Ég klifraði þarna 6. maí fyrir all mörgum árum síðan þar sem ég og Tommi flæktumst í leið sem var óklifruð en komust ekki upp en var seinna klifruð og skýrð Þilið. Mig minnir að í fyrra eða fyrir tveimur árum hafi Tjaldið verið farið í annað skipti í krinum 1. maí þannig að klifurvertíðin er ansi löng ef menn nenna að labba. Með fullri virðingu finnst mér nú 2 tímar úr bíl ef maður labbar alla leið vera ansi rösklega farið en þessir ungu naglar eru ansi harðir.
    Olli

    #50290
    Sissi
    Moderator

    Henti inn á askinn líka. http://gallery.askur.org

    #50291
    0311783479
    Meðlimur

    Klassa helgi og vel þess virði að rífa sig upp og fljúga frá Skotlandi. Ég og Andri ætluðum í skottúr í Kleifarfossinn í Þyrli á mán. en ekkert var þar og fórum í stað í göngutúr upp á fjallið.

    Góðir dagar á fjöllum eins og spekingur nokkur komst að orði!

    kveðja
    Halli

    ps. set eitthvað á http://gallery.askur.org við tækifæri

    #50292
    0703784699
    Meðlimur

    já það getur verið langt labbið inn Elífsdalinn….og langur dagur….en ef menn villast í Blikadal á heimleiðinni að þá fara nú KM að hrannast hratt upp til sælla minninga.

    Gimp

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.