Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Klifurgraðir ísgrísir
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
7. febrúar, 2008 at 16:03 #45544
SkabbiParticipantHæ!
Ákveðið hefur verið að halda Ísklifurfestivalið í ár á suðausturhorninu, n.t.t. í Berufirði og Breiðdalsvík. Kunnugir segja að þar sé aragrúi óklifraðra ísleiða og að það verði bilað frost og brjálað stuð helgina 22. – 24. feb.
Hægt er að sjá nokkrar myndir úr Breiðdalnum (og víðar) hér:
http://albertleichtfried.at/adventure/island-2007/?g2_itemId=3928#c86
Eriggi allir í stuði!!
Allez!
Skabbi
11. febrúar, 2008 at 11:48 #52427
Siggi TommiParticipantMaður verður að reyna að smella sér með. Ekki hægt að missa af þessu…
12. febrúar, 2008 at 00:29 #52428
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVarðandi ís á S-Austurhluta landins.
Ég var um helgina stutt frá Kirkjubæjarklaustri og þar var nóg af ís, Sexí og Hertoginn af Kolbeinsey virtust í aðstæðum. Á sunnudaginn gekk ég inn í Hörgsárgljúfur sem er við bæinn Múlakot, aðeins um 5 mínútna akstri frá Klaustri. Það var töluvert af ís í gljúfrinu þrátt fyrir asahláku á föstudeginum. Í gljúfrinu er ógrynni leiða í en flestar eru þær sennilega einnar spanna leiðir i mjög fallegu umhverfi. Á góðum degi er mögulegt að ná mörgum leiðum. Ég náði aðeins að ganga inn um rétt hálft gljúfrið en hafði mjög gaman af.
Skellti inn nokkrum myndum á http://www.agust.smugmug.comMæli með að menn kíki á þetta ef svo vildi til að menn ættu leið hjá.
ný-ísklifursvæðakönnunarkveðja
Ágúst -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.