Ísturninn-tilkynning

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Ísturninn-tilkynning

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45777
    Freyr Ingi
    Participant

    Því miður hefur ekki verið hægt að skrúfa frá turnkrananum þennann veturinn og líklega mun það ástand haldast út veturinn.
    Ástæðan fyrir þessu er hvorki bilun né áhugaleysi heldur hafa verktakar á svæðinu komið vinnu/kaffiskúr sínum haganlega fyrir beint undir ísklifursvæði turnsins og eru því algerlega fyrir bæði ísmyndun og ísklifrurum.

    Illa farið með fínan frostakafla og við skulum vona að þetta verði ekki sportinu til trafala.

    Um að gera að mæta þess í stað í klifurhúsið á miðvikudagskvöldum með ístól og hjelm og svitna aðeins BÍS þrautunum þar á bæ.

    FIB

    #52283

    Hmmm… vissi ekki að það væri óyfirstíganlegt vandamál að færa einn skitinn vinnuskúr. Þetta er nú bara hlægilegt.

    #52284
    1108755689
    Meðlimur

    Varðandi þessi miðvikudagskvöld. Er hjálmur, axir og túttur það eina sem þarf. Ekkert línustúss eða þannig?

    Fáfróðus maximus

    #52285
    Skabbi
    Participant

    Túttur, hjálmur og axir er það eina sem þarf. Ef axir hafa skaröxi (adze) er best að fjarlægja hana ef e-r séns er á því, eða þá að klæða hana e-nvegin. Það kemur fyrir að (ís)axirnar renni af gripum í miðjum hreyfingum og maður vill ekki fá skaröxina í smettið.

    Það hefur verið hörkustemming í klifurhúsinu undanfarin miðvikudagskvöld.

    Allez!

    Skabbi

    #52286
    2704735479
    Meðlimur

    Bara rétt að minna á að ísaxaklifrið byrjar ekki fyrr en klukkan 21:30 og stendur til 23.

    gott bís klifur

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.