Ísfestival – myndir

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Ísfestival – myndir

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46985
    Björk
    Participant
    #53807
    Freyr Ingi
    Participant

    Hæ og takk fyrir gott mót um helgina.

    Þetta var alveg milljón!

    Myndavélin mín var með uppreisn svo að ég náði ekki aksjónmyndum en hér er allavega eitthvað.

    http://picasaweb.google.com/freskur/Sfestival2009BLD#

    Hvet svo alla til að senda leiðarlýsingar og yfirlitsmyndir til Sigga og/eða Robba sem fyrst. Þeir ætla að sinna leiðaskráningum og halda utan um þetta.

    Þetta má bara ekki gleymast.

    Takk aftur fyrir stemminguna og allt!

    Freysi

    #53808
    2411784719
    Meðlimur

    Magnaðar myndir, sérstaklega síðasta myndin af þér Björk, þú ljómar af gleði.

    #53809
    2308862109
    Participant

    Þakka fyrir stórgóða helgi.

    skellti inn eitthvað af myndum

    http://picasaweb.google.com/halldor86/SklifurfestivalABildudal#

    Dóri

    #53810
    2208704059
    Meðlimur

    Þetta hefur nú verið frábær helgi.

    Örugglega umhusunarverður vaxtarbroddur ferðamennsku og ferðaþjónustu á þessu svæði.
    Ég held að olíuhreinsistöð myndi henta Björk vel, þar þurfa örugglega að vinna verkfræðingar og svo er hægt að klifra á frívöktunum!!

    Nei, þetta hefur bara verið þannig að gamlingja eins og ég eru bara að spá í að fara með næst. Þó ekki væri nema til að leysa Sissa af við sögusagnirnar.

    Hlynur Sk.

    #53811
    0311783479
    Meðlimur

    Það er alltaf krónískur skortur á góðum sögum – spurning hvort að við mætum ekki næst Hlynur og sjáum um sögunar. ;o)

    Halli

    #53812
    Freyr Ingi
    Participant

    Það væri kærkomið drengir og komiði fagnandi!!

    Einn sem er búinn að heyra allar sögurnar hans Sissa. ;o)

    F.

    #53813
    Sissi
    Moderator

    Já sæll, ég er kominn með leið á þeim sjálfur…

    #53814
    Björk
    Participant

    Tja Hlynur veit ekki með það, reynslan segir mér að þegar maður vinnur í útlegð Buskanum þá er það fyrsta sem maður gerir í vaktafríum er að koma sér í burtu!

    Hlynur og Halli þetta er bókað, það verður gaman að fá ykkur á næsta festivali.

    Sissi nenniru að segja okkur söguna um lárétta snúningsásinn hans Robba, held að sumir hafi ekki heyrt hana!

    #53815

    Takk fyrir helgina…þetta var snilldin ein

    Nokkrar myndir í viðbót

    http://picasaweb.google.com/ragnarheidar/SklifurfestivalABildudal#

    #53816
    Sissi
    Moderator

    Það er 2007, 2009 er ár punktmassans!

    #53817

    Setti inn myndir á http://agust.smugmug.com/

    Pís át

    #53818
    Skabbi
    Participant

    Skemmtilegar myndir gott fólk, sérlega glæsilegar hjá Ága verð ég að segja. Af SmugMug síðunni hans Ága ráfaði ég inn á myndasíðu Arnars & Berglindar. Fann þar myndir frá Mýrarhyrnunni sem ég hafði ekki áður séð, virkilega flottar myndir, enda Mýrarhyrnan stórbrotið klifursvæði.

    Ég hef tekið eftir ákveðnu trendi meðal ísalpskra myndasmiða. Nebblilega að sá tími sem það tekur að koma myndum fyrir sjónir almennings er í beinu hlutfalli við heildarverð ljósmyndabúnaðar.

    Ixus fólkið hraunar út myndum samdægurs, EOS 40 – 400 eftir nokkra daga. Stóru playerarnir seint, eða aldrei.

    *andvarp*

    Svo eru menn eins og ég sem taka aldrei myndir en rífa stöðugt kjaft….

    Allez!

    Skabbi

    #53819

    Góður punktur hjá Skabba um rötunartíma mynda á vefinn. Gaman að benda á það ég hef tekið skref aftur til framtíðar og notaði filmuvél mest um helgina. Ég hef nefnilega trú á að tískan fari í hringi:)

    Filman er málið.

    Einnig skora ég á menn að skrá leiðirnar sínar undir Nýjar ísklifurleiðir.

    Ági

    #53820
    Gummi St
    Participant

    hahaha… ég er nú með allt reddý… það er bara enn verið að andskotast með nöfnin á leiðunum…

    #53821
    Gummi St
    Participant

    en það eru einhverjar myndir komnar inná climbing.is
    Þakka aftur fyrir frábæra festivalhelgi !
    !!! Takk fyrir mig !!!

    #53822
    Siggi Tommi
    Participant

    Jæja, ég er stoltur eigandi EOS400D vélar þó takmarkað kunni ég til verka við bæði myndasmíð og -vinnslu. Þurfti að vaka fram á nótt til að klára þessi ósköp því það er enginn tími á daginn fyrir svona húmbúkk.

    http://picasaweb.google.com/hraundrangi/SklifurfestivalSalpBildudal#

    Afsakið myndafjöldann en þetta byrjaði í 250stk og endaði í 72stk og gekk mjög erfiðlega að lækka það meira.

    Eitthvað af þessu er svona þokkalegt.
    Bon appetit og takk aftur fyrir góða helgi…

17 umræða - 1 til 17 (af 17)
  • You must be logged in to reply to this topic.