- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
15. February, 2007 at 09:33 #45600
2002773689MemberHvernig fór fundurinn í gær? Urðu breytingar á stjórn Ísalp eða stefnuskrá? Var eitthvað ákveðið með utankjörstaðaratkvæðin?
Annars má ég til með að nefna að hér í norðri er alveg bullandi, svellandi ís og fyrirtaksaðstæður til ísklifurs vilji einhver taka forskot á sæluna fyrir festival.
Hef jafnvel hæg heimatök um að redda gistingu vilji einhver leyfa miðaldra húsfreyju að halda í spotta.
Kv. Helga
15. February, 2007 at 11:35 #51127
SkabbiParticipantHæ
Aðalfundur fór vel fram, rúlega 30 manns létu sjá sig. Unnið er að því að skrifa formlega fundargerð, en þangað til hún birtist á vefnum get ég upplýst þig, og aðra, um eftirfarandi mál:
1) Utankjörfundaratkvæði voru ekki tekin gild á þessum fundi, ný stjórn mun kanna það mál fyrir næsta aðalfund.
2) Freyr Ingi Björnsson var kosinn formaður ÍSALP
3) Þorvaldur Þórsson (Olli) er sá eini sem situr úr stjórn síðasta árs. Aðrir komu nýjir inn, þeir Viðar Helgason, Sveinborg Gunnarsdóttir, Smári Stefánsson, Ágúst Steinarsson og undirritaður, Skarphéðinn Halldórsson.
4) Stefnuskrá ÍSALP er enn sú sama, hvernig ný stjórn mun útfæra hana mun koma í ljós.
Annars þakka ég húsfreyju gott boð en á því miður ekki heimangengt. Vonast til að sjá hana á festivalinu, þá gjarnan með súra kýrfótinn.
Allez!
Skabbi
15. February, 2007 at 17:37 #51128
2002773689MemberÞakka þér fyrir upplýsingarnar Skabbi.
Setti myndir af ísnum í gær á netið
því ég veit að ekki trúa allir þeim sem búa á Norðurlandi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.