Hallgrímur sýnir myndir frá Liverpoollandi

Home Umræður Umræður Almennt Hallgrímur sýnir myndir frá Liverpoollandi

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45291
    2802693959
    Meðlimur

    Í kvöld verður fyrsta myndakvöld Íslenskra Fjallaleiðsögumanna að Vagnhöfða 7 þar sem kynntar verða fjórar göngu- og skíðaferðir til framandi slóða, þ.á.m. Liverpoollands.
    Einar Torfi Finnsson segir frá ferð á Kilimanjaro sem farin verður 7. – 22. júní næstkomandi.
    Hallgrímur Magnússon kynnir magnaða fjallaskíðaferð til Liverpoollands 10. – 17. maí næstkomandi.
    Þá verða sýndar myndir frá glæsilegum fjallasal Mont Blanc svæðisins en þangað verður farið 29.júní – 7. júlí næstkomandi.
    Að síðustu mun svo Dagný Indriðadóttir segja frá gönguferð um Pyreneafjöll sem farin verður 21.-27. apríl næstkomandi.
    Í boði er skemmtileg kvöldstund þar sem skyggnst er á framandi slóðir og viðeigandi veitingar hafðar um hönd. Næstu myndakvöld eru fyrirhuguð 3. og 17. apríl næskomandi. Takið kvöldin frá!
    kv, Jón Gauti

    #52579
    2802693959
    Meðlimur

    Sýningin hefst klukkan 20.
    kv, Jón Gauti

2 umræða - 1 til 2 (af 2)
  • You must be logged in to reply to this topic.