Gisting fyrir festivalið

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Gisting fyrir festivalið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45960
    Skabbi
    Participant

    Stemming er með besta móti fyrir ísklifurfestivalinu. Hátt í 25 manns hafa boðað komu sína og ljóst að það yrði þröngt um mannskapinn á Berunesi. Ég leitaði því á önnur mið og fastnaði okkur veiðihúsið við Breiðdalsá. Stærra hús, nær ísnum. Verð er sem fyrr 2000 krónur fyrir nóttina.

    http://strengir.is/iceland/gisting/breid_big.jpg

    Það verður ekki slæmt að teygja úr skönkunum í þessari stofu eftir erfiðan dag í ísnum!

    Þeir sem vilja e-r upplýsingar um festivalið eða gistinguna geta hringt í mig í síma 8645834 eða sent mér póst á skabbi(hjá)gmail.com.

    Skabbi

    #52462
    2506663659
    Participant

    Þetta er snild Skabbi. Spennan farin að magnast og ekki spillir þessi aðstaða. Reiknarðu með að allir komist í veiðihúsið?

    Snær

    #52463
    Skabbi
    Participant

    Já, ég talaði við eiganda hússins í dag til að athuga hvernig væri með að hýsa allan þenna mannskap. Hann sagði að það væru e-r 20 rúm í húsinu og auk þess væri hægt að bæta við dýnum í stærri herbergjunum eftir þörfum.

    Skabbi

    #52464
    0112873529
    Meðlimur

    Það held ég nú þetta verður bara lúxus. Spenningurinn farinn að magnast gífurlega hér á bæ. Vonadi verður bara nó af ís.
    ….Góður Skabbi….

    Danni

    #52465
    Siggi Tommi
    Participant

    Það verður endalaust af ís! :)

    Ég hef enga trú á öðru en það sé af nógu að taka þarna fyrir okkur, jafnvel þó Berufjarðarþilin séu úti vegna hæðarleysis og nálægðar við sjó. Efri þilin í Breiðdalnum eru alveg pottþétt í sama (eða betra) ástandi og þegar Öræfingurinn var þarna í síðustu viku og þá var þetta vel feitt.
    Er ekki bara markmiðið að allir frumfari að lágmarki 2-3 línur þessa helgina? Þá ættum við að logga nokkra tugi leiða og koma þessu svæði almennilega á kortið…

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.