Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Fyrsta ísklifur vetrarins?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
10. November, 2009 at 08:30 #47258
0304724629MemberEins og allir kannast við en enginn þorir að viðurkenna, þá er óformleg keppni um hver er fyrst/ur að lemja ís haustsins. Örvar og Jonni félagi hans fóru í Naustahvilft sl. sunnudag og fundu ágætis ís. ,,Lentu” í myrkri án þess að vera með ljós, brösuðu við vaffþræðingar í langan tíma og fleira rookie stuff. Er Naustahvilft sigurvegari ársins?
rok
10. November, 2009 at 10:32 #54675
SkabbiParticipantHæ
Lítill fugl sagði mér af tveimur heljarmennum sem keyrðu upp undir Þórisjökul þann 3. október. Fundi dulítið ísskæni og klifu. Ekki hefi ég heyrt af frekari afrekum síðan þá.
Jonni og Örvar hafa samt líklega verið fyrstir til að klifra “ágætis ís” í vetur, sem og fyrstir til að gera vaffþræðingu, ef það má vera e-r huggun harmi gegn.Allez!
Skabbi
10. November, 2009 at 12:55 #54676
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantFlott hjá strákunum. Tóku þeir ekki myndir?
kv. Ági
10. November, 2009 at 16:29 #54677
0304724629MemberÞeir voru ekki með myndavél. Þið verðið bara að trúa mér…
10. November, 2009 at 17:38 #54678
2806763069MemberEkki einu sinni astraltertu gubb?
10. November, 2009 at 23:20 #54679
Grimur SnorrasonMemberMér skilst þeir hafi skemmt síma og týnt ísskrúfu í þessari ferð.
11. November, 2009 at 00:08 #54681
SissiModeratoreru ekki allar ferðir í Þórisjökul með minna tjóni en 2 línum og 10 skrúfum nokkuð vel heppnaðar?
11. November, 2009 at 12:07 #54683
RobbiParticipantSizzi…það skilur þig enginn, þú talar í gátum.
En glæsilegt með ísinn, gott að einhver er að gera eitthvað.robbi
11. November, 2009 at 16:55 #54684
2806763069MemberÚff, loksins að einhver bara sagði honum sannleikann!
11. November, 2009 at 19:51 #54685
ABParticipantRobbi og Íbbi, þetta er í raun ykkar vandamál. Sissi er gefinn fyrir grín í fjórðu víddinni, sem er fyrirbæri sem þið kunnið augljóslega engin skil á. Svona er þetta alltaf – frumkvöðlarnir eru barðir niður af skilningssljóum almúganum.
Og ég sem hélt að allir vissu allt um Stóra-Þórisjökulsklúðrið.
Kv,
AB
12. November, 2009 at 00:47 #54686
SissiModeratorJá rétt er það. Það er gaman í fjórðu víddinni en stundum er svolítið bergmál.
En lítill fugl hvíslaði að mér að það væri sitthvað úr fjórðu víddinni sem leyndist í næsta ársriti, ég er orðinn ógurlega spenntur enda skilst mér að þetta sé aaaalveg að detta í prentvélina.
Svo sokkar allra landa, borga árgjaldið og bíða svo spenntur við bréfalúguna, eins og Corky að bíða eftir skólabílnum.
Sissi^4
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.