Færið á Hnjúkinn

Home Umræður Umræður Almennt Færið á Hnjúkinn

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45623
    1410693309
    Meðlimur

    Þar sem engar frægðarsögur hafa verið settar á spjallsíðuna eftir páskana datt mér í hug að nefna, fyrir áhugasama, að Virkisjökulsleiðin á Hnjúkinn var í n. góðum skíðaaðstæðum um páskana. Snjór var frá bröttu fönninni og ósprungið að kalla upp á topp. Á Eyjafjallajökli munaði minnstu að maður glutraðist ofan í feita sprungu austan megin við Goðastein, en hópurinn hafði borið út af leið vegna skyggnisleysis. E.t.v. er rétt að sýna jöklinum þá virðingu að hafa brodda og línustubb með í för. Gaman væri að heyra af skíðaaðstæðum á annesjum á Norðurlandi ef einhverjar voru.
    Kv. SM

    #48674
    0801667969
    Meðlimur

    Lögðum þrír íann úr Tindfjallaskála skömmu fyrir hádegi á skírdag í súld og krapaleg. Stigum á skíðin við skálann. Efst á jöklinum birti til og í frábæru veðri var skíðað niður jökultunguna sem liggur niður að austan. Eftir að jökli sleppti tóku við grænar mosagrundir og skíðin því öxluð. Gengum allar Emstrurnar í myrkri og mikilli aurbleytu. Erfiðast að ekki var hægt að setjast niður eða leggja neitt frá sér. Komum í Botnaskálann farinn að ganga þrjú um nóttina.
    Stebbi P. ákvað að verða þarna eftir en við Árni Sigurðs. lögðum í ann 9 um morguninn í algjörri heiðríkju og sumarhita. Á Entujökulinum var skíðað á ís upp í 900 m hæð. Á há-Mýrdalsjökli var vestan strekkingur, frostúði að blint. Skíðuðum vestur af Goðabungu í rökkri og engu skyggni. Á Fimmvörðuhálsi var þungt blautt nýsnævi. Komum í Útivistarskálann eitt um nóttina.
    Lögðum af stað vestur yfir Eyjafjallajökul kl. eitt í pollagallanum í súld en stilltu. Eltum gönguskíðaslóð sem beygði til suðvestur þegar kom upp undir gíginn (hugsanlega niður að Seljavöllum). Fórum í blindbil yfir gíginn og rákumst á tvær sæmilega opnar sprungur þegar farið er upp úr gígnum vestanverðum. Telemarkað var niður frábærar skíðabrekkur þegar komið var niður af jökli norðaustan Dagmálafjalls og komum um 11 leytið niður að Stóru-Mörk eftir frábæran gönguskíðatúr.
    P.S. Hittum aldrei vélknúið ökutæki í túrnum (jú 3 kyrrstæða jeppa í skálanum á Mosum).

    Kv. Árni Alf.

    #48675
    Ólafur
    Participant

    Það er víðar hægt að skíða en á Norðurlandi. Fór við þriðja mann á Heklu á fös. langa í sól og blíðu og fínu færi; nokkuð hörðu.

    Slóðinn inn að Litlu-Heklu er orðinn fær öllum meðal-jeppum og hægt að keyra alla leið uppí fyrstu skafla. Nú er semsagt rétti tíminn til að bruna inneftir og ná góðu rennsli niður NV-hlíðina (sem er hiklaust ein besta brekka landsins).
    Kv. órh

    #48676
    1410693309
    Meðlimur

    Árni, við höfum þá farist á mis á Eyjafjallajökli því ég lagði af stað frá veginum fyrir ofan Skóga um kl. 11 á laugard. og fór 100 m fyrir neðan skálann. Við vorum uppi á Hámundi rúmlega 14.00 og renndum okkur svo í laugina. Þótt ekki sé mikill snjór á jöklinum sunnanverðum var þó hægt að renna sér langleiðina niður að háa fossinum vestan megin við þar sem maður gengur venjulega upp.
    Kv. SM

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.