Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Aðstæður þessa dagana
- This topic is empty.
- 
		HöfundurSvör
- 
		
			
				
19. nóvember, 2007 at 15:07 #46432 Siggi TommiParticipant Siggi TommiParticipantVeit einhver hvort ís er byrjaður að myndast einhvers staðar á svæðum fjarri sjó (og vel ofan sjávarmáls)? 
 Það er ekki búið að vera sérlega kalt í byggð svosem en þessir heitu dagar hafa hvorki verið sérlega margir né mjög hlýir.
 Jöklarnir, Villingadalur, Eilífsdalur, Skíðadalur… ??Helgin á að vera þokkalega köld en hlýindi fram í miðja viku. 19. nóvember, 2007 at 15:19 #51899 0703784699Meðlimur 0703784699Meðlimur…sá ekki betur en að hinar bestu aðstæður f. mix séu að myndast í klifurhúsinu….en því miður að þá missi ég af því….góða skemmtun….og tvo þumbla upp f. ísalp og klifurhúsinu. Spurning hvort að HSSR taki sig ekki til og haldi annað leiðslu-mix-mót? Gimp 19. nóvember, 2007 at 16:37 #51900 3008774949Meðlimur 3008774949MeðlimurVorum nokkrir í Tindfjöllum í gær í blíðunni en þar er löngu kominn vetur. Mér sýndist Tindurinn vera í hörkuaðstæðum og nóg er af snjó frá og með ca 800 m hæð þó hann sé í harðari kantinum Leifur var reyndar á leið á Tindinn með kúnna svo hann ætti að geta svarað fyrir ísaðstæður þeim megin 
 Siggi19. nóvember, 2007 at 18:31 #51901 0801667969Meðlimur 0801667969MeðlimurJa þú áttir við Einbúa Siggi minn. Það er hvergi klettur sem ber heitið tindur á þessu svæði en Einbúi er þarna. Ja líklega er bara Lödu færi víða til fjalla þessa dagana. Kv. Árni Alf. 19. nóvember, 2007 at 19:59 #51902 Freyr IngiParticipant Freyr IngiParticipantÍs í þynnra lagi í Eilífsdal á sunnudag. 
 Klifinn þó.
 Arnar og Berglind fóru Einfarann.
 Freyr og Ólíver hinn ódrepandi fóru eitthvað annað.Flottur dagur á f… 20. nóvember, 2007 at 08:20 #51903 3008774949Meðlimur 3008774949MeðlimurNei ég átti við Tind Árni minn. Allaveganna samkvæmt kortinu sem ég var að skoða. En hvort þið heimamenn hafið önnur nöfn veit ég ekki  20. nóvember, 2007 at 17:45 #51904 20. nóvember, 2007 at 17:45 #51904 0808794749Meðlimur 0808794749Meðlimurfinnst eins og þessi tinds/einbúa umræða hafi áður farið fram hér á spjallinu. þið viljið kannski skoða þennan gamla þráð… 20. nóvember, 2007 at 18:01 #51905 0801667969Meðlimur 0801667969MeðlimurJá rétt er að þetta er á kortinu en það er einfaldlega vitlaust. Kannksi það þyrfi að skrifa um þetta stutta laggóða grein í næsta ársrit ÍSALP. 
 Mig rámar í það að ÍSALP hafi á sínum tíma samþykkt að réttara væri að nota nafnið Einbúi enda væri það eldra og réttara nafn en nýnefnið Tindur. Eitthvað er til um þessa samþykkt í eldri ritum ÍSALP. Hafa skal það er sannara reynist sagði Ari eða Árni fróði.Kv. Árni fróði 20. nóvember, 2007 at 19:37 #51906 0111823999Meðlimur 0111823999MeðlimurÁ korti LMÍ 1:100000 eru bæði örnefnin Tindur og Einbúi en á sitthvorum staðnum. 
 Tindur rétt norðan við Tindafjöll en Einbúi (749mys) nokkuð vestar.
 Gaman væri að vita um hvorn klettinn er verið að ræða hér.
 kv Helga María20. nóvember, 2007 at 21:37 #51907 0801667969Meðlimur 0801667969MeðlimurEinbúi er settur á rangan stað á kortinu. Tindur er ekki til. Ég hef það frá fyrstu hendi frá fólki sem bjó að Fljótsdal, innsta bæ í Fljótshlíð, að sá mjög áberandi klettur sem blasir við frá bænum heiti Einbúi. 
 Fjallamenn úr Reykjavík komu þarna austur á sínum tíma, uppnefndu þennan klett Tind (sjá árbók Fí 1960) og komu því inn á kort.
 Finnst mönnum líklegt að fólk sem hefur eitthvað kennileyti
 fyrir augunum á hverjum degi fari með rangt mál?Á umræddu korti (og fleirum) er örnefnið Einbúi einnig settur fyrir ofan Stóru-Mörk. Það er, hefur aldrei verið, né verður neinn Einbúi á þeim slóðum. Og enn síður tindur. Kv. Árni ættaður frá Stóru-Mörk 20. nóvember, 2007 at 22:10 #51908 0808794749Meðlimur 0808794749MeðlimurÁrni nú skora ég á þig sem kunnugan mann að skrifa um þetta í næsta ársrit. Ef ekki þú hver þá? 20. nóvember, 2007 at 22:58 #51909 Siggi TommiParticipant Siggi TommiParticipantVið heimtum 20 bls grein með þrívíddarkortum og viðtölum við helstu örnefnaspekinga landsins ásamt ítarlegum töflum og t.d. tölfræði yfir hversu hátt hlutfall fólks er haldið þessar skynvillu að kalla þetta „Tindinn“. Annars er ritnefndin að plana fund og mun fara í innheimtuaðgerðir á efni í ársrit á næstunni. Setjið ykkur því rit- og myndvinnslugírinn ef þið viljið koma ykkar stöffi á framfæri í 2007 ritinu… 20. nóvember, 2007 at 23:07 #51910 Siggi TommiParticipant Siggi TommiParticipantVarðandi þurrtólunarmót á Malarhöfðanum, þá er það vel athugandi. Gallarnir eru helst þessir: 
 – það tekur leiðinlega mikinn tíma að undirbúa þetta (yfirstíganlegur þröskuldur reyndar)
 – það er að koma desember og þá má ekki hreyfa sinn digra bossa þarna inni fyrir flugeldastæðum og -vinnuÞetta þyrfti því að gerast annað hvort fyrir 1. des eða svo eða þá eftir miðjan janúar. 
 Þarf að heyra í mínum lagsmönnum varðandi áhuga á að setja þetta upp.Hverjir hefðu áhuga á að mæta annars og hvenær vikunnar? Þetta var gríðarstuð síðast… 21. nóvember, 2007 at 07:05 #51911 2806763069Meðlimur 2806763069MeðlimurHeld að ísalp ætti að setja þetta þurrtóls mót inn sem árlegan viðburð í samvinnu við HSSR. 
 Best að hafa þetta að hausti áður en vertíðin byrjar.Kannski væri líka hægt að fá KH til að koma upp aðstöðu til æfinga fyrir þetta í takmarkaðan tíma fyrir svona mót. Gæti verið leið til að ná til nýs markhóps fyrir þá (ef hægt er að finna útfærslu á því að hvernig sameina má fólk með ísaxir og fólk með kalkpoka án þess að úr verði mikill sóðaskapur). Það væri í öllu falli ómetanlegt fyrir þessa fáu ísklifrara að geta æft sig nokkrar vikur á haustin. Og það eru alltaf einhverjir sem myndu mæta á æfingar með axir en ekki með kalkpoka. Bara svona pæling… kv. Sófacore 21. nóvember, 2007 at 15:52 #51912 1410693309Meðlimur 1410693309MeðlimurMér heyrist að Örnefnanefnd eigi fullt erindi í málið. Annars grunar mig sterklega að Árni Alfreðs hafi á réttu að standa með Tindsnafnið. Hitt er svo annað mál að „Tindafjöll“ er líklega gamalt örnefni svo að mönnum var vorkunn… Já, það væri gaman ef einhver skrifaði um örnefnasöguna þarna og kæmi ákv hlutum á hreint. 21. nóvember, 2007 at 16:36 #51913 Siggi TommiParticipant Siggi TommiParticipantÁrni var nú með ágætis grein um steinana í Eyjafjallajökli í riti hér um árið. 
 Færi vel á að hann væri með svona örnefnapistil á nokkurra ára fresti.22. nóvember, 2007 at 00:06 #51914 2005774349Meðlimur 2005774349MeðlimurJó Ibbi gogg! Ísklifrarararar með plastblöð hafa átt athvarf í KH á hádegisopnunartíma undanfarið haustið þó ekki hafi farið hátt um það. 
 Minni hætta á að axarsköft lendi á hausnum á fólki utan álagstíma þegar 40 til 50 manns eru að klifra í einu í KH.Minni svo á axarsköftin sem verða viðhöfð í KH á laugardagssíðdegi næstkomandi. KH er líka með hugmynd á kreiki aftan í hnakkanum fyrir klifrara sem vilja sköft frekar en plastgrjót. F.h. KH, 
 HRG (sófawannabeísklifrari).22. nóvember, 2007 at 18:02 #51915 2806763069Meðlimur 2806763069MeðlimurGott mál Guð veit að ekki veitir af. Síðasta ársrit kom ekki mjög vel út fyrir íslenskt ísklifur á meðan klakstöðin KH er að skila mögnuðum árangri! kv. 
 Softarinn
- 
		HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.


