Re: svar: Sprikklandi í BC

Home Umræður Umræður Almennt Sprikklandi á Grikklandi Re: svar: Sprikklandi í BC

#50702
0310783509
Meðlimur

Umm… hljómar vel þessi fjölskylduferð ykkar.

Ég fékk fyrst fríið mitt hérna í Kanada og fór til Skaha í Penticton í það sem lítur út fyrir að verða síðasta klettaklifur ferð ársins og kannski sú síðasta til Skaha yfir höfuð. Fyrir þá sem þekkja ekki til og eru að lesa þá er Skaha eitt af vinsælustu klettaklifur svæðum í BC í Canada með yfir 800 leiðir til að velja úr boltaðar og dótaleiðir. Þar sem eigandinn er að reyna að selja landið sitt og enginn kaupandi vill hafa klifrarana þar þá lítur út fyrir lokun sem hefst 1.Nóvember næstkomandi og verður um óákveðinn tíma. Þetta hlómar næstum jafn illa og hliðið inn í Valshamar… Nema kannski að um síðustu helgi „Þakkagjörðarhelgina“ voru 500 manns og 125 bílar taldir á bílastæðinu. Jæja við höfum allavegana alltaf Squamish…

Frekari upplýsingar á http://www.skaha.org/SkahaBluffs_Main.htm

Jæja bið að heilsa ykkur í bili og passið að brenna ekki í Grísku sólinni.
Sjáumst fljótlega
Einar Ísfeld