Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hvernig á að setja ísskrúfu í ís? › Re: Re: Hvernig á að setja ísskrúfu í ís?

Hæ
Ég held að það sé óþarfi að hrópa of hátt um spurninguna hans Gulla. Greinin virðist vera nokkuð skýr hvað þetta varðar.
Jú, býsna gott. Ef það eru ekki meira en 5 cm sem skaga út er sjálfsagt að klippa beint í augað.
Nei, nokkurnvegin jafngóð. Vesenið byrjar ekki fyrr en skrúfan er farin að skaga enn lengra út.
Himmi spyr
Ef allur ís væri alltaf góður væri nóg að vera bara með 13 cm skrúfur. Meikar alveg sens ef þær eru (næstum því) jafnsterkar og 22 cm skrúfur. 13 cm skrúfur eru léttari og ódýrari, auk þess sem þú þarf að skrúfa 50% minna til að koma þeim inn að hjöltum.
Vandamálið í hinum raunverulega heimi er að ís er ekkert alltaf góður, og það getur verið erfitt að vita hvar góði ísinn er og hvar draslið er. Skrúfur sem eru lengri ná einfaldlega dýpra og eiga því meiri möguleika á að ná til góða íssins. Ég ætla allavega ekki að henda 16 cm skrúfunum mínum alveg strax.
Allez!
Skabbi