Re: Leiðir í Munka…

Home Umræður Umræður Klettaklifur „Nýjar“ gamlar leiðir Re: Leiðir í Munka…

#49880
Siggi Tommi
Participant

Við spáðum mikið í því hvort réttlætanlegt væri að bolta þessar leiðir og teljum við að við höfum ekki verið að skemma fyrir með þessum boltum.
Hef verið að ræða þessi mál við þá norðanmenn (Bassa, Böbba og fleiri í Súlum) í nokkur ár og hafa þeir haft mikinn áhuga á að fá fleiri bolta þarna inneftir þó þeir hafi kannski ekki talið sig kandídata í sjálfan gjörninginn (sökum reynsluleysis í klifri og almenns þekkingarleysis á boltun almennt ?).

Ég er alla vega á þeirri skoðun að ef leið er það tortryggð að „enginn“ prílar hana nema í toprope, þá sé hún varla merkileg sem dótaleið (og alls ekki til kennslu í henni).

Gott dæmi um þetta er Undir brúnni, sem er frábær leið sem ég hef aldrei heyrt um að menn hafi klifrað í mína tíð, hvorki í dóti né toprope (ekki svo að skilja að ég heyri af öllu sem hefur verið klifrað þarna en… :). Gaman að höfundurinn Palli er ánægður með þetta og vonandi að hann prófi hana í sportstíl á næstunni því leiðin er ein sú skemmtilegasta á svæðinu…

Hinar leiðirnar sem við boltuðum var að okkar áliti fyllilega réttlætanlegt að bolta enda flóran á svæðinu fyrir klifrara aukist til muna þó bara hafi verið bætt við þessum fáu línum:
U.V. í upphaflega tópóinu að Munka segir að leiðin sé auðtryggð og ein besta leiðin í gilinu. Vissulega er leiðin góð en ég prílaði einhvern tímann upp í ca. miðja leið með dótarakk og endaði með að bakka niður því ég var kominn eina 5-6m upp og það var ekki séns að koma dóti þar inn. Efsti hlutinn er þess utan mjög þunnur saumur og mjög erfitt að koma almennilegu dóti þar inn. Kannski er ég bara svona lélegur að koma inn dóti og þætti mér gaman að heyra ef einhverjir hefðu dótaklifrað leiðina á seinni árum…

Bókin/Talía. Fínar leiðir og eina línan sem getur talist eitthvað fyrir byrjendur í gilinu. Grjótið í þakinu fyrir miðja leið er nokkuð laust og e.t.v. vafasamt til dótunar auk þess sem bæði neðri og efri parturinn eru tortryggjanlegir með dóti.

Rétt er að geta þess að leiðir eins og Sófus og Stóru mistökin voru upphaflega klifraðar sem dótaleiðir og ekki hef ég orðið var við að menn hafi séð á eftir þeim inn í heim sportklifurleiða…
Hvað sögðu menn annars þegar Valshamar var fyrst boltaður? Var ekki allt þar upphaflega „dótaklifur“?

Þær leiðir sem gætu talist til almennilegra dótaleiða í Munka (Góðir vinir, Dóni og Hornið) voru ekki snertar og munum við persónulega alla vega ekki koma að boltun þeirra.

Gaman væri að heyra álit sem flestra á þessu „ódæði“, hvort sem það er ánægja eða óánægja…