vikgud

Forum Replies Created

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Klifurbúnaður til sölu. #56891
    vikgud
    Member

    Væri skynsamlegt að láta árgerð fylgja með allavega hjálm og belti.

    Kv.
    Viktor

    in reply to: Laus steinn í Eilífi #56814
    vikgud
    Member

    Smá meiri slóðaumræða.

    Ég fór upp í Valshamar í dag, þar var bóndinn á svæðinu að vinna í slóðanum inn að ÍSALP stæðinu. Hann stoppaði mig og sagðist vera laga veginn fyrir okkar og spurði í leiðinni hvort við þyrftum stærra bílastæði. Ég sagði að það þyrfti nú ekki að vera neitt mikið stærra þó smá stækkun væri kannski fín, en aðallega það að fólksbílar gætu lagt í öll stæðin, ekki eins og þetta er nú þar sem fólksbílar geta í raun bara notað svona tvö stæði. (Ég sá 1x síðasta sumar að bíll þurfti að vera lagður fyrir utan girðingu sökum plássleysis).

    Annars er bóndinn nú búinn að keyra fullt af efni í veginn og var að reyna vinna og gera þetta gott.

    Hann vildi bara að ég kæmi þessum skilaboðum til stjórnar og sagði að það þyrftu kannski nokkrir að rölta allan veginn og grjóthreinsa þetta lausa sem verður eftir ofaná en miðað við það efni sem hann var að setja í veginn þegar ég keyrði hann þá ætti það nú ekki að vera mikið. Annars þakkaði ég honum bara kærlega fyrir hans vinnu.

    in reply to: GPS hugbúnaður #56438
    vikgud
    Member

    Ég hef eingöngu notað MapSource. Fannst það óþolandi þegar ég var að byrja en það hefur vanist, hægt að gera mest allt í því sem maður þarf.

    Er eitthvað eitt ákveðið að fara í taugarnar á þér ?

    Viktor

    in reply to: Hnappavellir. Miðskjól. Myndband #56430
    vikgud
    Member

    Snilld, þetta fær mann strax til að byrja hlakka til sumarsins.

    in reply to: Klifurvideo #56338
    vikgud
    Member
    in reply to: Nýir gönguskór? #56130
    vikgud
    Member

    Ég hef verið að nota Meindl Island og verið mjög sáttur við hann. Smell passar á mig og hef ég hvorki fengið nuddsár né blöðrur af þeim. Þeir eru líklega í sama verð og stífleikaflokki og Scarpa Ladakh þannig þá er það bara hvor ‘fittar’ betur á hvern og einn. Vatnsheldnin er mjög góð.

    Eini gallinn sem mér hefur þótt við mitt par af Meindl Island er að það vantar gúmmí til að hlífa tánum á skónum eins og er á Ladakh, þannig leðrið á tánni er orðið frekar sjúskað. Þetta er hinsvegar búið að laga á nýjustu Island.

    in reply to: Klifur-landakort #55985
    vikgud
    Member

    Strákarnir hjá Klifur.is hafa þegar safnað saman ansi miklum upplýsingum um klettaklifur og boulder svæði á landinu.

    http://klifur.is/is/googlemap

    Þú ert þó líklega að tala um ísklifursvæði?

    in reply to: Skíðafæri Bláfjöllum #55772
    vikgud
    Member

    Var uppi í Bláfjöllum í kvöld í topp aðstæðum.

    Kongurinn var opinn og eitthvað af diskalyftum. Kongsgilið sjálft er ótroðið og eitthvað um steina (lokað) en öxlinni er í mjög góðu standi, nægur snjór og vel troðið.

Viewing 8 posts - 1 through 8 (of 8 total)