Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hvernig var á festivali? › Re: Re:Hvernig var á festivali?
Þín var líka sárt saknað um helgina, sérstaklega þegar við fórum að setja upp nýja pottinn! Vantaði alþýðuverkfræðing
Persónulega skemmti ég mér geðveikt vel og það var mikið stuð í mannskapnum. Það voru 14 nýjar leiðir klifraðar í Öræfunum/Skaftafellssýslunum og einnig nokkrar endurklifraðar, nýjar leiðir voru klifraðar í Rótarfjallsgljúfri, Morsárdal og Fjaðurárgljúfri. Veðrið var með ágætis móti og má segja að við höfum fengið allar árstíðir um helgina, bestur var sunnudagurinn með stillu og -2°c!
Snjóflóð hræddu líftóruna úr fólki í fyrra en grjóthrun þetta árið, og forðuðu 2 team sér í burtu á hlaupum á laugardeginum.
Þetta er svona stutta útgáfan af helginni og skráning þeirra hefst vonandi í dag. Ég tók að venju engar myndir svo ég bíð líka spennt eftir myndum, en ég veit fyrir víst að það var tekinn slatti af þeim auk þess sem Herocam var á svæðinu.
Bk,
HelgaM