Home › Forums › Umræður › Almennt › Laugardagurinn: Hvað gerði fólkið › Re: svar: Laugardagurinn: Hvað gerði fólkið
2. November, 2008 at 14:08
#53207
Skabbi
Participant
Hæ
Eins og Sveinn greinir svo skilmerkilega frá þá fórum við þrír félagar í Villingadal. Ís var enn í sæmilegum aðstæðum en heldur blautur. Klifruðum leiðina 14 og leið sem ég ekki kann að nefna vinstra megin í hvylftinni. Við bjuggumst við að sjá e-n mannskap í dalnum en urðum ekki varir við frekari mannaferðir.
Nú bíður maður bara eftir næsta frosti.
Allez!
Skabbi