- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
24. June, 2004 at 18:36 #46560
0703784699MemberHelvítis djö….búið að stela af okkur 8 metrum í göngu upp á hnjúkinn!!!
En samkvæmt áreiðanlegum heimildum (mogginn) þá hafa mælingar Jöklarannsóknarfélagsins sýnt að Hnjúkurinn sé einungis 2.111m á hæð yfir sjávarmáli.
Gimp
24. June, 2004 at 21:00 #48824
SissiModeratorÉg lít svo á að allir sem fara á Hnjúkinn héðan í frá séu bara að fara á minna fjall
25. June, 2004 at 09:17 #48825
0503664729ParticipantÞað versta er að hæsta fjall Svíþjóðar er 2117 m ……
25. June, 2004 at 09:23 #48826
2806763069MemberÞað var samþykkt hjá herráði ÍFLM að taka ekki mark á þessum tölum. Hnjúkurinn er því enn 2119 í huga Fjallaleiðsögumanna og verður það þangað til að fyrstu leiðsögumennirnir sem lesið hafa annað í landafræði í barnaskóla koma til starfa.
f.h. ÍFLM
Ívar F. Finnbogason25. June, 2004 at 10:11 #48827
ÓlafurParticipantDjöfull var maður heppinn að ná honum þegar hann var ennþá 2119. Annars lyktar þetta allt saman af samsæri og föðurlandssvikum hjá jöklarannsóknarfélaginu. Hefur einhver kannað tengsl þessa félags við Svíþjóð?
25. June, 2004 at 10:42 #48828
0703784699Membervið förum nú ekki að vera minni menn en Svíar…
En Ívar….verður rukkað lægra þegar þetta er orðið staðfest?
Svo er það sama með þetta og örnefnin…manni er kennt eitt svo kemur annað í ljós, fuss og svei…Gimp hefur ekki undan að update-a!!!
25. June, 2004 at 13:05 #48829
2806763069MemberÞegar sá tími kemur að við verðum að horfast í augu við nýar tölur munum við vissulega taka tillit til þess í verðlagningu fyrirtækisins með hliðsjón af þróun vísitölu neysluverðs og almenns launaskriðs. Hagfræðideild fyrirtækisins hefur þegar hafið undirbúning og söfnun gagna.
25. June, 2004 at 13:21 #48830
0311783479MemberÍvar eru þið búnir að skipta úr Virkisjökulsleiðinni yfir í Sandfellsleiðina fyrir kúnna?
25. June, 2004 at 17:56 #48831
0902703629MemberSænski-tindurinn er ekki nema 2104 m.y.s. skv. nýjustu mælingum þótt þeir haldi hinni tölunni enn fram á kortum. Þannig að við eigum enn hærri tind en Svíar. En síðan sá ég að þessu verði ekki breytt í bráð á kortum heldur hér, þannig að við getum enn sagt Jóa á bolnum að Hnjúkurinn sé 2119 m.y.s.
Heimildir, Morgunblaðið 25.06.04…og ekki lýgur það…er það nokkuð Stymmi…eða var hann hættur…nei hann er smiður.
kv
Bassi27. June, 2004 at 14:44 #48832
RobbiParticipantÞað verður að passa að hafa ekki hátt um þetta…fólk gæti farið að fara fram á endurgriðslu frá ÍFLM
RH -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.