- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. August, 2008 at 15:04 #46556
0405614209ParticipantÉg átti leið í Valshamar um helgina og þá var búið að rífa niður og beygla nýja skiltið sem bendir á aksturleiðina að hamrinum.
Ég kom skiltinu aftur á stöngina. Eitthvað virðist þetta fara í taugarnar á einhverjum þarna á svæðinu??
11. August, 2008 at 15:15 #52980
SissiModeratorJá, hestarnir eru ekki að meika þetta ónæði og hafa verið að taka það út á skiltinu og bifreiðum klifrara.
Siz
11. August, 2008 at 16:15 #52981
SkabbiParticipantHæ
Já, ég hef tvisvar lagað skiltið síðan það kom upp. Hvernig getur maður komið í veg fyrir að hestarnir fari í skiltið? Lengja stöngina um 5 metra? Jarðsprengjubelti umhverfis það?
Allez!
Skabbi
11. August, 2008 at 20:53 #52982
0405614209ParticipantEf svona liggur í þessu þá er að fjarlægja trunturnar eða að lengja skiltið eða láta kyrrt liggja eða???
11. August, 2008 at 21:52 #52983
1908803629ParticipantJá, var einmitt að spá í þessu… Þegar ég kom að síðast þá var eins og einn hesturinn væri með afturendan límdan við staurinn, og var ekki á leið með að færa sig þegar ég reyndi að festa skiltið aftur á.
Sem sagt… Hestarnir fá greinilega eitthvað út úr því að kynnast þessu skilti okkar sem best og því ólíklegt að okkur takist að halda því föstu á stönginni, sérstaklega ekki ef það er í þessari hæð.
Jú, ein lausn væri að hafa skiltið hátt hátt uppi en hvað með að festa það alveg við jörðina, þá eru held ég minkandi líkur á því að hestarnir juðist í því eða að það detti úr og það væri engin fyrirhöfn að koma því fyrir þannig, á stönginni…
Svo er held ég gott húsráð að leggja þar sem maður sér bílinn, þannig að maður getur brugðist skjótt við ef hestarnir skyldu fara nærri.
11. August, 2008 at 22:57 #52984
KarlParticipantÞað má vefja staurinn og skiltið inn í gaddavír……!
12. August, 2008 at 09:37 #52985
SmáriParticipantLandeigandi hefur gefið’ grænt ljós á að setja upp hólf fyrir bílana okkar, þ.e. setja niður nokkra staura og einhvern borða á milli (held að það sé basta lausnin). Er einhver sem býður sig fram í hólfagerð? Svona borði fæst í lífland skilst mér og Ísalp borgar brúsann.
kv. Smári
12. August, 2008 at 12:17 #52986
Björgvin HilmarssonParticipantSvona litað rafmagnsgirðingaband svínvirkar á hesta þó svo að ekkert rafmagns sé á því, svo það væri alveg inni í myndinni að setja upp bara létta staura í þetta hólf (og í kringum skiltið) og strengja í kring. Má allavega athuga hvort þetta virkar áður en farið er í massífa girðingavinnu með gaddavír, sverum staurum og öllu því tilsandi sem því fylgir.
12. August, 2008 at 12:42 #52987
BjörkParticipantjá vorum búin að ræða þetta innan stjórnar og vorum komin á þá lausn sem Björgvin nefnir. Það á bara eftir að framkvæma.
14. August, 2008 at 02:26 #52988
1709703309MemberHestunum finnst gott að klóra sér eins og mannfólki. Þá eru öll ráð og aðföng notuð.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.