- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
30. November, 2004 at 11:04 #46123
1110734499Membergóð hugmynd hjá vefnefnd ísalp að höfða aðeins til þekkingar og glöggsemi ísalpara. mætti vera meira í þessum dúr, bæði nýjar myndir og gamlar.
en hvað þessa mynd varðar er ekki mikið á mér að græða nema þetta sé einn af fjölmörgum sporðjöklum vatnajökuls sem ganga suðaustur úr honum og öræfajökull í hillingum í baksýn. þetta er bara skot út í loftið og vonandi hafa aðrir skárri hugmyndir.
kv. d
30. November, 2004 at 11:42 #49200
1709703309MemberÉg ætla að skjóta á það sama og segja Svínafellsjökull, frekar en Virkisjökul, fyrir myntbreytingu. Reffilegur karlinn.
Verst að fá ekki svar.
Með kveðju,
Stefán
30. November, 2004 at 12:18 #49201
2402833609MemberIss er þetta ekki bara fótósjoppuð mynd…

Kv, AB
30. November, 2004 at 12:53 #49202
SissiModeratorNibb, þetta er frá 1936. Magnaður skítur. Geri mér ekki alveg grein fyrir þessu, skaut á Svínafellsj. en það passar einhvern veginn ekki miðað við samanburð á öðrum myndum sem maður á. Maður verður líka að taka mið af því að skriðjöklarnir voru að teygja sig mun lengra á þessum tíma…
“Jæja, kominn með stafinn og reddí í jöklaferðir”
Magnað…
30. November, 2004 at 13:48 #49203
Björgvin HilmarssonParticipantMér dettur strax í hug að þetta geti verið á Þórisjökli og að þetta sé Hádegisfell syðra í baksýn. Tékkið á þessari mynd: http://bjsv.icelandic.net/Fjallamennska_1_2004/IMG_0423
…sem tekin var í ferð núna um helgina. Fjallið í bakgrunni er svipað, það sést í siggengisröndina þarna fyrir miðri mynd og OKið til vinstri. Sjónarhornin eru örlítið mismunandi, sú nýrri tekin fjær og ofar.30. November, 2004 at 17:16 #49204
2003793739MemberSammála síðasta ræðumanni. Góður…
30. November, 2004 at 21:22 #49205
1110734499Memberjá þeir eru klókir margir ísalpararnir.
kv.d
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.