- This topic is empty.
- 
		AuthorPosts
- 
		
			
				
1. February, 2008 at 08:23 #45560 2806763069Member 2806763069MemberKominn í vinnuna? Ekki gaman! Hvernig væri að gera eitthvað skemmtilegra í dag? Vantar leikfélaga, ekkert erfitt (maður er nú bara bauna-ræfill). kv. Ívar 699 2876 Til þeirra sem ég vakti í morgun, ég hélt það væri laugardagur og á þannig degi hef ég ekkert samviskubit yfir að vekja fólk fyrir 08:00. Sorry! Árni á ekki að fara að opna þetta svæði á skikkanlegum tíma fyrir okkur sem ekki tilheyrum hinni vinnandi stétt? 
 Þjónustan við iðjuleysingja í þessu samfélagi er algerlega til háborinnar skammar!1. February, 2008 at 10:51 #52340 0801667969Member 0801667969MemberJú opnar kl. 14. Dúnúlpan sem ég keypti af Leifi á basarnum nú í haust svínvirkar. Hér er dúnalogn og 15 stiga frost. Svínhált og harf færi víðast utan brauta. Sólarupprásin er hreint mögnuð hér upp á Fjalli. Útsýnið svíkur engan. Eyjafjallajökull og hinir Suðurjöklar blasa við. Vestmannaeyjar og Surtsey virðast í seilingarfjarlægð. Norðar er svo Hekla, Skjaldbreiður, Þóris-og Eiríksjökull. Snæfellsjökull kemur skýrar inn með kvöldinu. Það eru svona morgnar sem halda manni gangandi. Kv. Árni Alf. 1. February, 2008 at 11:36 #52341 SissiModerator SissiModeratorhehehe – ég fór alveg grenjandi í vinnuna í góða veðrinu, hélt að þú værir bara að pína mig  Siz 1. February, 2008 at 12:19 #52342 2104833659Member 2104833659MemberÆtlum í Haukadal um helgina, er einhver topo eða myndir sem þið lumið á þaðan? 1. February, 2008 at 12:25 #52343 0311783479Member 0311783479MemberArsritid fra ’98 minnir mig, er med leidarvisinn. kv. 
 Halli1. February, 2008 at 14:05 #52344 SkabbiParticipant SkabbiParticipantJep Ársritið ’98 geymir fyrirtaks leiðarvísi að Haukadal. Ég skildi reyndar eftir eintak að Stóra Vatnshorni síðast þegar ég var þar, vona að það sé þar enn. Í framhaldi bið ég menn að gæta þess að skilja það eftir þar ef þeir dvelja þar við klifur. Hvað eruð þið mörg Raggi? Var að benda 4 útlendingum á Haukadal um helgina, með gistingu á Stóra Vatnshorni. Allez! Skabbi 1. February, 2008 at 14:21 #52345 2104833659Member 2104833659MemberUhh.. ég held við séum 4 líka… gistum einmitt á Stóra Vatnshorni. 
 ég tékka á leiðarvísirnum þarna, skil hann eftir.-Raggi 
- 
		AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.


