Vesturhlíð
Gul lína á mynd
Fyrsta leiðin á vesturvegg Hvannadalshnúks
FF: Helgi Benediktsson, solo , 28.03 1986,
Klifursvæði | Öræfajökull |
Svæði | Hvannadalshnjúkur |
Tegund | Alpine |
Merkingar |
Gul lína á mynd
Fyrsta leiðin á vesturvegg Hvannadalshnúks
FF: Helgi Benediktsson, solo , 28.03 1986,
Klifursvæði | Öræfajökull |
Svæði | Hvannadalshnjúkur |
Tegund | Alpine |
Merkingar |
Blá lína á mynd
Hnjúkaþeyr var frumfarin 13. október 2020. Hugmyndin var að fara upp vesturvegginn eftir eins beinni línu (direct) og mögulegt er.
Aðkoman var farin eftir Hnappavallaleið á skíðum og tók um fimm klukkustundir. Líkt og þegar Italian Job var klifruð hliðruðu klifrararnir inn á vegginn til að halda hæð og spara tíma. Ef aðkoman er tekin frá Svínafellsjökli er vel hægt að fylgja sömu leið og Beina Brautin inn á vegginn.
Í frumferðinni sam-klifruðu strákarnir allan fyrr helming fjallsins og yfir þriðju gráðu íshaft og upp að „gatnamótum“ leiðanna Beina Brautin og Vinamissis. Þar hafði myndast fallegur ísfoss, um 100 metra langur, sem lá beinustu leið upp á topp.
Á Íslandi er orðið hnjúkaþeyr upprunnið úr Skaftafellsýslum þar sem hnjúkaþeyr var skilgreindur á þennan hátt: „Nær vindur er á útnorðan um vetur og stendur af Öræfajökli þeyjar snjór á Hnappavöllum, þó alls staðar sé frost annars staðar, og kallast það hnúkaþeyr“ (Sæmundur Hólm). ;Frá Vísindarvefnum
Gul lína á mynd
Fyrsta leiðin á vesturvegg Hvannadalshnúks
FF: Helgi Benediktsson, solo , 28.03 1986,
Græn leið á mynd
Leiðin byrjar á að fylgja „Beinu brautinni“ (Rauð) en fer svo eitt gil til hægri nær toppnum. Aðkoman er í kringum sjö tímar frá Svínafellsjökli.
Leiðin er nefnd eftir vinum frumfarenda sem hafa farið á einn eða annan hátt
FF Bjartur Týr Ólafsson, Þorsteinn Cameron og Matteo Meucci
15-10-2016
WI3 180m D
Í apríl 1997 klifu Haraldur Örn Ólafsson og Guðmundur Eyjólfsson austurvegg Hvannadalshnúks fyrstir manna.
Fyrir miðjum veggnum er hryggur og ganga gil upp með honum beggja vegna. Originalinn liggur hægra megin við hrygginn. Fyrr höfðu Sigursteinn Baldursson og Guðmundur Eyjólfsson reynt við gilið vinstra megin og þurft að snúa við 40m frá toppnum.
Veggurinn liggur mjög hátt og er kominn í aðstæður snemma vetrar.
Leiðin þykir þó nokkuð alvarleg og tæknilega erfið. Ganga þarf í gegnum sprungið jöklalandslag til undir vegginn og þar tekur við krefjandi klifur, allt upp að 5. gráðu ís.
Gráða: D, WI5
Haraldur Í lykilkafla leiðarinnar. Ljósm. Guðmundur Eyjólfsson
Appelsínugul leið á mynd
Þriðja leiðin í Vesturvegg Hvannadalshnúks. Liggur Vestan megin í veggnum og fer upp áberandi foss þar. Leiðin er merkt nr. 3 á mynd.
Veggurinn liggur mjög hátt og er kominn í aðstæður snemma vetrar.
Hægt er að sækja að veggnum annaðhvort frá Svínafellsjökli eða úr Suðri, þá um Sandfell eða Svínahrygg. Aðkoman er löng og gera má ráð fyrir að lágmarki 12 tíma degi, líklega lengri.
Leiðin er ekki mjög erfið tæknilega en er engu að síður mjög alvarleg. Fara þarf um sprungið jöklalandslag til að komast að veggnum og leiðin sjálf getur verið illtryggjanleg. Bergið í veggnum er mjög laust og tæplega hæft til trygginga.
Gráða: D, WI4
FF: Matteo Meucci og Bergur Einarsson, haust 2014
Rauð leið á mynd
Önnur ferðin sem vitað er af um Vesturvegg Hvannadalshnúks. Liggur beint upp miðjan vegginn bratt snjóklifur og endar í rúmlega 60m háum fossi. Leið nr. 1 á mynd.
Veggurinn liggur mjög hátt og er kominn í aðstæður snemma vetrar.
Hægt er að sækja að veggnum annaðhvort frá Svínafellsjökli eða úr Suðri, þá um Sandfell eða Svínahrygg. Aðkoman er löng og gera má ráð fyrir að lágmarki 12 tíma degi, líklega lengri.
Leiðin er ekki mjög erfið tæknilega en er engu að síður mjög alvarleg. Fara þarf um sprungið jöklalandslag til að komast að veggnum og leiðin sjálf getur verið illtryggjanleg. Bergið í veggnum er mjög laust og tæplega hæft til trygginga. Yfir leiðinni hanga stórir serakkar og má því mæla með því að lágmarka tímann á vegnum eins og hægt er.
Gráða: D, WI4
FF: Leifur Örn Svavarsson og Björgvin Hilmarsson, 22. sept 2010