- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
22. maí, 2011 at 18:48 #47515
BjörkParticipantjæja… býst við að slatti af Ísölpurum hafi verið í námunda við Skaftafell þegar gos hófst, og eru þá væntanlega fastir þar!
Er askan ekki að leggjast yfir Hnjúkinn, Hnappavelli, Svínafellsjökul o.s.frv?
24. maí, 2011 at 23:55 #56708
SissiModeratorNokkrir af þessum eru kunnuglegir: http://www.visir.is/keyrdu-upp-ad-rotum-gosstodvanna-/article/2011110529363
30. maí, 2011 at 12:58 #56727
2210803279MeðlimurFór einhver á Hnjúkinn um helgina? Er búið að snjóa yfir öskuna á toppnum/sléttunni?
kv Stefán
3. júní, 2011 at 18:48 #56741
0502833219Meðlimurvar á hnúknum í gær og það er búið að snjóa yfir hnúkinn en er nokkuð grár.
Það er búið að snjóa nokkuð mikið í vetur og er hnúkurinn sjálfur nokkur auðveldur eins og staðan er núna.Kv. Siggi
3. júní, 2011 at 21:20 #56742
Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantVar á Hrútfjallstindum í dag. Færið var alveg eðal og veðrið eins og best var á kosið. Það er aska yfir öllu og skítugi snjórinn verður fljótt að drullu eftir hádegi. Töluvert er þó af nýjum snjó ofan við 1000 metra sem er þó að bráðna hratt. Lækir í Hafrafelli og Sandfelli eru hreinir og vatnið vel drykkjarhæft. Sveinborg sagði hins vegar að vatnið í Hnútudal sé skítugt.
Veðurspá næstu daga er flott þannig um að gera fyrir fólk að bruna austur að spræna upp tindana.
Kveðja úr Skaftafelli
Ági6. júní, 2011 at 09:54 #56743
SissiModeratorÞað var prýðilegt á Hnappó um helgina, heyrði af hópum sem gerðu tilraunir við Þverártindsegg og Þumal amk.
6. júní, 2011 at 16:22 #56745
0909862369MeðlimurEru Hnappavellir orðnir sæmilega öskuhreinir eða þarf maður að mæta með handryksuguna með sér þegar maður er á ferðinni?
6. júní, 2011 at 17:18 #56746
SissiModeratorÞað er ekki meira en svo að dótið manns var svona aðeins skítugt og maður náði að hlífa augunum með því að vera með sólgleraugu. Finnur örugglega ekki fyrir þessu í logni og varla að þetta böggaði mann neitt að ráði.
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.