Námskeið

Home Umræður Umræður Almennt Námskeið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46428
    2806763069
    Meðlimur

    Daginn

    Eins og einhverjir kunna að hafa tekið eftir þá er dagskrá sem Ísalp og ÍFLM keyra saman í námskeiðahaldið byrjuð að birtast á netinu.

    Í næstu viku er stefnan að byrja haustið með hefðbundnum hætti á Ísklifur I.

    Þeir sem vilja lesa meira um námskeiðin ættu að líta inn hér:

    http://www.fjallaleidsogumenn.is/Namskeid/

    Ég vek svo athyggli ísalpara og vætntanlegra ísalpara á að öll námskeiðin eru sett upp með sér Ísalp verðum – sem eru stundum svo góð að það borgar sig margfalt að vera félagi í Ísalp.

    Við höfum gert eina breytingu – fjallaskíðanámskeiðið okkar sem tekur eitt kvöld og einn dag hefur verið tekið út og í staðinn sett inn bitastæðara námskeið sem ætti að fullnægja þörfum flestra nokkðu vel hvað snjóflóða fræðslu varðar – og ætti að vera góð skemmtun í leiðinni.

    Hér er meira um það:

    http://www.fjallaleidsogumenn.is/Namskeid/FreeRideSnjoflodaNamskeid/

    Annars hefur eitthvað verið rætt hér innanhúss um mögulegar breytingar á einhverjum námskeiðanna og ég er mjög opin fyrir skoðanskiptum varðandi það.

    Góðar stundir,
    Softarinn

    #57906
    2806763069
    Meðlimur

    Það er búið að spyrja dálítið um Ísklifur I og þar sem kynningin á Ísklifur I var í algeru lágmarki þegar það var átti að vera um daginn höfum við ákveðið að skella á öðru námskeiði dagana 14. og 17. nóv. næstkomandi.

    Miðað við fyrirspurnirnar ætti skráninginn á þessa síðari dagsetningu að vera öllu skárri en á þá fyrri.

    Góðar stundir,
    Softarinn

    #57973
    2806763069
    Meðlimur

    Sælt veri fólkið

    Vildi bara minna á að Ísklifur II hefst með kvöldfyrirlestri á miðvikudaginn í næstu viku.

    Þeim umræðum verður svo fylgt eftir með alvöru ísklifri á laugardeginum sem ætti að vera toppurinn ef aðstæður haldast eins og þær eru í dag. Bara gaman!

    Þeir sem eru spenntir fyrir þessu geta séð meira hér (og takið eftir sérkjörum fyrir félagsmenn í ÍSALP):

    http://www.fjallaleidsogumenn.is/Namskeid/

    Góðar stundir,

    Ívar

    #58015
    2806763069
    Meðlimur

    Ísklifur II var haldið á sunnudaginn, tvímennt en góðmennt. Í þetta skiptið var einn af fossunum í Villingadal fyrir valinu.

    Á myndinni má sjá nemendurna, Halldór og Andra.
    https://picasaweb.google.com/106207102682455692233/Veturinn_201213#5820312843116360274

4 umræða - 1 til 4 (af 4)
  • You must be logged in to reply to this topic.