Myndir af Telemarkhelginni

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Myndir af Telemarkhelginni

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #46181
    0704685149
    Meðlimur

    Hér er hægt að skoða skemmtilegar myndir af Telemarkhelginni.

    http://ibi.smugmug.com/gallery/2602022#137228304

    takk Íbí.

    kveðja

    #51287
    2802693959
    Meðlimur

    Setti nokkrar hráar myndir inn með frétt um helgina á vef Útiveru http://www.utivera.is.
    Öll aðstoð við að nafngreina þá keppendur er vel þegin.
    Vinsamlega sendi elínu á jongauti@utivera.is
    Til stendur að segja frá helginni í stuttu máli og myndum í næsta tbl. og því þætti mér vænt um að fá að sjá góðar myndir hjá þeim sem þær tóku.
    Sérstaklega vantar mig myndir úr stökkkeppninni á föstudaginn og svo frá fjallabruninu sem Skúli vann svo eftirmynnilega. Held það hafi einmitt verið Skúli sem sagði við mig klukkan 12.30… „Þetta verður blásið af!“ Hann verður því að efast í eitt ár um hvað hefði getað gerst ef…
    jgj

    #51288
    Steinar Sig.
    Meðlimur

    Hér koma nokkrar myndir frá Vinafélagi Íslenskrar náttúru:

    http://www.pbase.com/arnor3/agureyrish2007

    Þetta myndasafn inniheldur þó meira af menningarhluta en skíðahluta ferðarinnar.

    #51289
    0404724959
    Meðlimur

    Svo var heljarinnar viðtal við Bassa í Vítt og breitt á Rás 1 í gær. Hægt að hlusta á http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4328621/3

    Kv. Íbí

    #51290
    0704685149
    Meðlimur

    Svo eru fleiri myndir að detta inn.
    Hér eru skemmtilegar myndir frá Helgu Björtu

    http://www.pbase.com/helgz/telemark

    kv
    Bassi

    #51291
    1410693309
    Meðlimur

    Já, Gauti minn. Það er auðvitað þitt mál ef þú sporðrennir öllu sem lögfræðingar segja þér. Þér til hróss verður hins vegar að viðurkennast að þú varst ótvírætt efnilegastur allra keppanda.

    Það kom mér hins vegar meira á óvart að TAT-arararar skyldu guggna á fjallarallinu eftir fjálglegar yfirlýsingar yfir borðum kvöldið áður. Ja, þetta unga fólk sem þekkir ekki annað en gerviefni, fingravettlinga og hverfur svo frá við smá skafrenning …

    Þetta var annars hið besta mót fyrir nokkuð mörg atriði í dómgæslu sem verða látin liggja milli hluta. Maturinn var til sérstakrar fyrirmyndar.

    #51292
    0704685149
    Meðlimur

    Það er nú ekki amarlegt að fá svona dóm…

    #51293
    3008774949
    Meðlimur

    Iss Tatarar mættu upp í fjall fyrir hádegi við hestaheilsu en voru fljótir að hverfa í bílana þegar fréttist af því að færðin væri að spillast því ekki vildum við að norðmaðurinn yrði veðurtepptur á Íslandi og missti af fluginu sínu.
    Tökum ykkur létt að ári!!!!!

    #51294
    3006774879
    Meðlimur

    Já ég verð að taka undir það með Skúla að maturinn var ansi fínn og ég min þakka þeim sem hann gerðu ,en annars takk fyrir gott mót og áfram team árbær. . . . .

    #51295
    2802693959
    Meðlimur

    Já, það eru víst örlög mín að vera bara efnilegur. Það væri nú strax til bóta ef ég yrði efnalegur!
    Þakka sömuleiðis mikið fyrir mig … skemmtilegt mót í alla staði.

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.