Festivalið

Home Umræður Umræður Ís- og alpaklifur Festivalið

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45953
    Smári
    Participant

    Ég vil þakka öllum þeim sem mættu á festivalið fyrir frábæra helgi. Um leið hvet ég þá sem fóru nýjar leiðir að skrá þær.

    Kv. Smári

    #51173
    Robbi
    Participant

    Já, þetta var massa gott festival og met mæting. Þess má einnig geta að útlendingarnir alræmdu klifruðu nýjar leiðir og var ein af þeim gráðuð WI6+. Það verður að teljast bara nokkuð gott. Þakka fyrir mig.þ
    Robbi

    #51174
    Sissi
    Moderator

    Algjör snilld! Ég vil líka þakka Róberti fyrir húslesturinn á föstudagskveldinu, ekki vissi ég að þvottavélar og steypuhlunkar væru svona heillandi umræðuefni.

    Siz

    #51175
    2502614709
    Participant

    Þetta var frábært mikil keyrsla. Útlendingarnir alræmdu eru tvær píur sem skráðu nöfn sín í Köldukinnina. Það var gaman að hitta þessa krakka þau voru öll nánir vinir Hari heitnum Berger. Það er ekki oft sem maður hittir atvinnuísklifrara. Leiðin heitir Wish you were here. WI6+/7- glæsilega gert. Ég held að planið hjá þeim sé að klifra eins margar leiðir á morgun og þau geta. Og halda síðan á austfirðina og kíkja við í Öræfunum hjá Einari. Það væri gaman að sjá þau taka eitt borvélaverkefni. Myndir Takk.

    Köld kveðja,

    #51176

    Takk kærlega fyrir mig. Stefni á að skella nokkrum myndum inná mínar síður fljótlega.

    #51177
    2003654379
    Meðlimur

    Frábær helgi og gaman að sjá snillinga að störfum,innlenda sem erlenda.Þetta hvetur okkur til að halda vel utan um atburði sem þennan og koma þessu sporti á þann stall sem það á heima!

    #51178
    Gummi St
    Participant

    Setti inn mynd af frægu leiðinni á

    http://www.internet.is/gummistori/WishYouWereHere.jpg

    setti inn leiðina eins og þær lýstu henni fyrir mig… á myndinni eru þær þarna neðst.. ég var að keyra þarna framhjá og ákvað auðvitað að smella af þeim !

    kv. Gummi St.

    #51179
    2506663659
    Participant

    Þakka kærlega fyrir mig. Þetta var frábært og vel að þessu staðið af hálfu klúbbsins. Ekki slæmt að koma úr ísnum í heita kjötsúpu á milli leiða.

    #51180
    0311783479
    Meðlimur

    Sælir félagar,

    Þakka kærlega fyrir mig, til fyrirmyndar þetta festival. Magnaðar leiðir og góður félagsskapur – maður biður ekki um meira.
    Held að þetta sér hér með árlegur viðburður, þar sem þetta var vel ferðalagsins virði héðan frá Englandi.

    Bestu kveðjur
    Halli

    #51181
    Siggi Tommi
    Participant

    Þakka kærlega fyrir helgina. Hvílík endemis sknilld.

    Erum með mikil plön um að ganga endanlega frá þessum leiðarvísi á næstu 1-2 vikum.
    Vantar að fá myndir frá sem flestum sem gætu nýst í leiðarvísi, sérstaklega vantar mig seríu sem gæti nýst til að gera panorama mynd sem sýndi svæðskiptinguna en einnig vantar bjartar og góðar myndir af öllum svæðunum.
    Endilega sendið á mig á sigurdurth@simi.is

    Annars var ég að byrja að uppfæra listann yfir leiðirnar á mínum síðum. Kíkið endilega á hann og látið vita ef ég er að gleyma einhverjum nýjum (sem við höldum að séu nýjar alla vega) leiðum og einnig vantar mig gráðu, lengd og lýsingu á flestar þessara nýju leiða.

10 umræða - 1 til 10 (af 10)
  • You must be logged in to reply to this topic.