Ársrit og kynningarkvöld

Home Umræður Umræður Almennt Ársrit og kynningarkvöld

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #45401
    1908803629
    Participant

    Hvernig er það annars? Eru menn og konur ekkert orðin spennt fyrir ársriti? Og hvað finnst félagsmönnum og konum um kynningarkvöldið næsta miðvikudag? Allir að taka með sér forvitinn vin.

    #51681
    Freyr Ingi
    Participant

    Dagskráin er einhvern veginn svona:

    -Glóðvolgu ársriti fleygt í félagsmenn (Það er í prentun as we speak og verður svo heftað í fyrramálið þannig að það eru góðar líkur á að það verði ennþá ylur í staflanum)

    -Olli sýnir fjallamyndir

    -Palli Sveins sýnir ísmyndir

    -Hlynur og Brynja sýna skíðamyndir

    -Hjalti Rafn sýnir klettamyndir

    -Kaffi og klifurhjal

    ofl. ofl.

    P.s
    hver myndasmiður fær max 15 mín til að klára sínar myndir þannig að þetta dragist nú ekki um of á langinn..

    Sjáumst,

    Freysi

    #51682
    2806763069
    Meðlimur

    Þið standið ykkur vel !

    #51683
    Sissi
    Moderator

    …eigið skilið klapp á bakið.

    *klapp*

    Siz

    #51684
    Freyr Ingi
    Participant

    Takk fyrir góðar vðtökur á kynningarkvöldinu!

    Samkvæmt greiningardeild alpaklúbbsins voru um 50 manns á svæðinu þegar mest lét og þrátt fyrir mikla kaffidrykkju var lítið um pústra og árekstra.

    Sérstakar þakkir fá fyrirlesararnir sem stóðu sig með stakri prýði og voru þeir flestir innan 15 mín tímarammans sem þeim hafði verið gefinn. (2 af 4)

    Þóttu menn þá einkar uppteknir af lestri hins nýja ársrits og er það vel. Þeir sem ekki komu við í Skútuvoginum í kvöld fá það heimsent á næstu dögum.

    Og þá er bara að fara að undirbúa afmælisársritið 2007.
    Greinar og myndir óskast!

    Freyr Ingi

5 umræða - 1 til 5 (af 5)
  • You must be logged in to reply to this topic.