Re: Re: Belgir og snjór

Home Umræður Umræður Skíði og bretti Belgir og snjór Re: Re: Belgir og snjór

#58124
sigjons
Meðlimur

Þessi Norska skýrsla er að mörgu leiti mjög áhugaverð. Viðbragðsflýtirinn er í raun magnaður. Þyrlan er komin á staðinn aðeins hálftíma eftir að slysið verður og fljótlega eru fyrstu merkin staðsett. Og þrátt fyrir að menn hafi verið grafnir á allt að sex metra dýpi eru allir komnir uppá yfirborð eftir u.þ.b. fjóra tíma.

Og jú belgurinn grefst dýpst… allir eru með ýla…

Þetta undirstrikar bara að það er nánast dauðadómur að lenda í snjóflóði!

Fyrsta og aðal reglan á ferðalögum á fjöllum er einfaldlega að koma sér ekki í þá stöðu að lenda í flóði. Það er auðvitað nógu erfitt en ðll hugsanleg nýjasta tækni sem býðst: ýlar, belgir, avalung og hvað sem er má aldrei verða til þess að menn taki stærri sénsa eða minnki árveknina.

Já, það vantar einmitt helst í skýrsluna eitthvað viðtal við hinn leiðsögumanninn og einhverjar skýringar á þessu leiðarvali?