Telemark og fjallaskíðaskór

Home Forums Umræður Almennt Telemark og fjallaskíðaskór

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45461
    Jokull
    Member

    Verð að deila þessum upplýsingum með ykkur….

    Hef verið að kanna framboð og verð á Fjallaskíða og Telemark klossum undanfarið. Var haldinn þeirri ranghugmynd að það væri best og ódýrast að pannta þetta á netinu.

    En annað kom heldur betur í ljós þegar ég hafði samband við Halldór í Fjallakofanum. Hann sérpantar Scarpa skíðaskó fyrir einstaklinga og veitir frábæra þjónustu.

    Og rúsínan í pylsu endanum er að þeir voru að meðaltali
    10 000 kalli ódýrari hjá honum en á netinu eða öðrum búðum.

    Tveir hlutir sem ég hélt ég myndi aldrei upplifa á Íslandi……..þjónusta + gott verð.

    Síminn í Fjallakofanum er 550 4900

    Fjallakveðja

    Jökull

    #50719
    Sissi
    Moderator

    Halldór reddaði Scarpa Omega, tveggja laga súperléttum plastskóm, fyrir okkur Hálfdán áður en við fórum til Pakistan í sumar. Þetta var á súperverði hjá honum, topp þjónusta.

    Um að gera að tékka á Halldóri.

    Siz

    #50720
    0203775509
    Member

    Ég verð að taka undir með Sissa og hamra á því hve Halldór var liðlegur við okkur í vor. Ekki spillti verðið fyrir.

    #50721
    1707844219
    Member

    http://www.fjallakofinn.is/?webID=1&p=72

    ekki hægt að segja annað en að verðin þarna séu til fyrirmyndar!

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.