Ísbíltúr í Hvalfjörðinn

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Ísbíltúr í Hvalfjörðinn

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45883
    1210853809
    Member

    Við fórum tveir og kíktum í ísbíltúr í Hvalfjörðin í dag eftir hádegið. Með í för var undirritaður í föruneyti við Tómas. Eitthvað var af ís í Hvalfirðinum en þó ekki mikið. Sá inn í Flugugil þar sem einhver ís var, en þó af skornum skammti líkt og víða. Við enduðum í Múlafjallinu þar sem við sáum möguleika á klifranlegum leiðum. Einna mest var af ís í leiðunum Rísanda og Stíganda, en þó náðu þær ekki saman. Enduðum með að fara eina leið sem er í gilinu hægra meginn (vestan meginn) við Rísanda og Stíganda. Leiðin er vestan meginn í því gili og innarlega. Hef ekki hugmynd um hvað leiðin heitir, en gaman væri að vita það ef einhver veit um nafn hennar eða hefur klifrað hana.
    Ísinn í leiðinni var nægur til klifurs en þó mjög þunnur á kafla og mixað inn á milli, en í alla staði skemmtilegt klifur.

    Kveðja,
    Jósef

    #53552
    Arnar Jónsson
    Participant

    Ætli þetta sé ekki Botlanginn WI 3

    http://climbing.is/lesa_frett.php?id=74

    Kv.
    Arnar

    #53553
    Anonymous
    Inactive

    Þetta gil hefur oft verið nefnt Leikfangaland. Botnlangi er jú hægra megin þarna.

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.