Goli

Svör sem þú hefur skrifað

25 umræða - 1 til 25 (af 53)
  • Höfundur
    Svör
  • in reply to: Telemakfestivalið #57606
    Goli
    Meðlimur

    Hæ og takk fyrir okkur, þetta var geggjað!

    Annars í tapað/fundið – þá tapaðist verðlaunapeningur fyrir 2. sæti karla (sá hann aldrei), en fannst ullarnærbolur trúlega ca medium?

    P.s. er hættur að haltra eftir Chineese downhillið !

    in reply to: Telemarkfestivalið #57570
    Goli
    Meðlimur

    Að vanda erum við komin norður að taka út aðstæður. Hérna er yndislegur fagurblár ís í brekkunum og frábært keppnisfæri. Lítur reyndar út fyrir helvítis snjókomu með lausamjöll á fimmtudaginn til að eyðileggja allt. En hafið engar áhyggjur, við skulum skiða allt helvítis púðrið á föstudeginum svo þið hin þurfið ekki að þreyta ykkur á því :)

    in reply to: Enn ein “fjallaskíðabindingin“ #55891
    Goli
    Meðlimur

    Himmi þarna er ég sammála þér. Reyndar á ég svona telemarkskíði sem koma með insertum þannig að ég get tekið bindingarnar af (K2 Hippy Stinx). Ekkert vandamál með þann búnað og hef þó reynt verulega á þetta. Verst að aðrir framleiðendur hafa ekki farið þessa leið svo ég viti til ennþá þannig að ég get ekki hent bindingunum á hin skíðin mín :( Draumurinn væri að eiga eitt par af telemarkbindingum, annað af svigskíðabindinum og svo slatta af skíðum og hægt að henda hvaða bindingum á hvaða skíðapar sem er. Í fullkomnum heimi…..

    in reply to: Telemark festivalið #55339
    Goli
    Meðlimur

    p.s. gaman væri að sjá fleiri myndir……

    in reply to: Telemark festivalið #55338
    Goli
    Meðlimur

    Þetta var mjög skemmtilegt festival, keppnin í traustum höndum, stemmningin frábær og allir kátir. Saknaði þess reyndar að sjá dvergana í fjallinu svo að staðið væri við þetta mittisdjúpa….

    Apré ski-ið var geggjað og hátíðin í torfbænum skemmtileg nýbreytni. Það sem helst má setja út á var verðlaunakynnirinn, sem var mjög einbeittur og hvass ef ekki bara leiðindagaur. Fangbrögð við Evrópudómarann réttu það allt af, en svona til að rétta misskilning af þá voru þau til gamans gerð og glímumenn báðir hinir kátustu að fangbrögðum loknum.

    Takk öll fyrir skemmtilega samveru !
    Góli, Maggý og restin af Team Garðabær!

    in reply to: Telemark festivalið #55320
    Goli
    Meðlimur

    Keypti gulan í dag hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Við Maggý erum sem sagt komin norður að taka út aðstæður. Fagna því sérstaklega að dvergar mæti á svæðið, en einhversstaðar sá ég talað um mittisdjúpan snjó :)

    Minni á telemarkreglurnar frá því í fyrra…get póstað þeim hérna ef menn vilja. Þýskur ofuragi og Valli hinn ógnvekjandi er það eina sem dugar á móti gegndarlausu væli sem er jú hluti af keppninni.

    in reply to: fjallaskíða og telemark græjur til sölu #54814
    Goli
    Meðlimur

    Helvíti sérðu vel Sissi neðan af bílastæði….hmmm.

    Þetta er það sem við höfum uppúr þessu bansetta snjóleysi, rífumst eins og tjeddlingar á netinu í staðinn fyrir að rippa púður, svei!

    in reply to: Kempur dagsins sem leið #54795
    Goli
    Meðlimur

    Flottur dagur á fjöllum strákar, vel gert !

    in reply to: fjallaskíða og telemark græjur til sölu #54794
    Goli
    Meðlimur

    Það er bara alltaf að sýna sig betur og betur að það er ekki fyrir hvaða viðvaning sem er að skíða án barnabindinga :)
    Ætli hinir sömu verði ekki fljótlega komnir með hjálpardekk á reiðfáka sína?
    Annars er þetta örugglega allt gott í bland og þegar ellin sækir á er aldrei að vita….en það er langt í það !

    in reply to: Á basarnum ætla ég að selja…… #54569
    Goli
    Meðlimur

    Mæti með tvenna sigtúnsskó; Scarpa T2 stærð 39-40 minnir mig og Garmont í stærð 45 minnir mig (þessir bláu). Aldrei að vita nema við grípum eitthvað fleira með okkur.

    Goli
    Meðlimur
    Goli
    Meðlimur

    Hef oft gert við svona með duct teipi að innanverðu og Aquasure gúi að utanverðu, verður fullkomlega vatnshelt en lítur aðeins út eins og einhver hafi misst „barnaefni“ á fatnaðinn.

    in reply to: Týndi leðurmaðurinn á telemarkfestivalinu #54125
    Goli
    Meðlimur

    Málið er upplýst, þetta var eftir allt leðurhomminn sem hefur verið að sniglast um á háaloftinu hjá okkur hjúunum. Hann heldur nú til síns heima :)

    in reply to: Pistillinn #53993
    Goli
    Meðlimur

    Akureyringar sjá um keppnina að ári – það er samþykkt !!! En þetta skot með sunnudaginn er undir belti, eftir að hafa étið egg, beikon og steiktar pylsur í morgunmat og gengið frá íbúðinni var haldið í fjallið. Tókum því rólega í þeirri vissu að fyrir norðan væri alltaf gott veður, en fuss og svei, rok og læti þannig að við hættum við. Stuttu seinna lokaði strýtan.

    En maður getur ekki annað en verið í skýjunum eftir helgina. Toppurinn var þegar við Rúnar veltumst niður hlíðina rétt fyrir fimm á laugardag.

    in reply to: Pistillinn #53987
    Goli
    Meðlimur

    Takk öll fyrir skemmtilega og sérlega vel heppnaða helgi. Mér finnst ég fá of mikinn hluta hróss fyrir það eitt að góla á lýðinn með lúðri og hjálpa til við að leggja braut, það voru Maggý og Sólveig sem kýldu þessa keppni áfram öðrum fremur og gátu ekkert skíðað á laugardaginn (enda önnur þeirra á hækjum). Mikil fórnfýsi fyrir málstaðinn þar.

    Við erum að velta fyrir okkur hverja við skorum á næst að reka áfram keppnina, því það getur ekki verið sama fólkið ár eftir ár (ég rétt náði 1 ferð í púðrinu). Tilnefningar eru vel þegnar…… látið heyra!

    Takk aftur allir, þetta var geggjað og samantektin hjá Sveinborgu helvíti flott !!!

    in reply to: Telemarkfestival – keppnisreglur allir lesa !!! #53930
    Goli
    Meðlimur

    Í ljósi ofangreindra athugasemda hefur keppnisstjórn bæst liðsauki; tröllaukið heljarmenni sem gæta mun öryggis og almenns velsæmis á keppnisstað. Ofurhugi sem náð hefur hæstu hæðum og er þeim kostum búinn að geta gefið dóma um þátttakendur með sínum risavaxna þumli – upp eða niður!!!

    Eins og fram hefur komið geta mótbárur við ákvörðun keppnisstjórnar haft slæmar afleiðingar, en það sem ekki kom fram var um hliðarkeppnisgrein sem má best lýsa sem „Epli handa kennaranum“. Það má sem sagt gleðja keppnisstjórn í því skyni að milda hana í dómum sínum, læt ykkur um að finna út úr því en keppnisstjórn finnst kakó, smákökur og herðanudd ósköp gott!

    Lifi spillingin (uuuu… eða var það byltingin) !?!

    in reply to: Telemarkfestivalið #53907
    Goli
    Meðlimur

    Matur fyrir okkur Maggý, namm namm!

    in reply to: Hvernig skíði? #53607
    Goli
    Meðlimur

    Það munaði ekki miklu að ég keypti mér notuð ScottyBob í fyrra í Colorado, helvíti flott skíði. Annars er þetta fyrirtaksþráður, gaman gaman!

    in reply to: Hvernig skíði? #53594
    Goli
    Meðlimur

    Sæll Árni

    Flottustu alhliða skíðin sem ég hef prófað eru Rossignol SickBird, þetta eru feit skíði en samt góð í braut, Maggý á svona skíði. Sjálfur er ég á enn feitari skíðum, K2 HippyStinx, en þau eru ekki að gefa sérlega mikið í braut en eru geggjuð í púðri.

    Ég fór í gegn um miklar bindingapælingar í fyrra og endaði á að kaupa BD O1, þetta eru bindingar með möguleika á að velta upp tástykkinu líkt og á fjallaskíðum á uppleið. Mjög stöðugar og góðar bindingar, en kosta sitt.

    Í lokin þá tek ég undir þetta með stangirnar í fjallinu, þær sjást engan veginn nógu vel, ég lenti í því í gær að sjá stangir í kross í miðri brekku á síðustu stundu og rétt náði að beygja mig undir þær eins og í 4ra ára brautinni á Andrés. Gott mál að merkja grjót í brekkunni en þarf að vera miklu meira áberandi.

    in reply to: Jólajóla! #53357
    Goli
    Meðlimur

    Heyrðu ég gæti verið meira en til í skíðun, lát heyra ef þið komið upp með plan!

    Góli s: 617-6924

    in reply to: Splitbretti Interface, Skyn og Crampon #53261
    Goli
    Meðlimur

    Annars á maður ekki að vera að eyðileggja góða þræði með skæting, það var bara svo freistandi.

    Mér sýnist þetta vera kostaboð hjá Geira fyrir fylgismenn einskíðunga.

    in reply to: Splitbretti Interface, Skyn og Crampon #53256
    Goli
    Meðlimur

    Uss – er einskíðungum að fjölga hér?

    Snýst þetta split dæmi ekki um að skera bretti í sundur svo þið getið rennt ykkur í plóg?

    17. aldar búnaður er málið!

    P.S: Sá ég ykkur tvo ekki í rúllusleik á Arnarhóli á menningarnótt?

    in reply to: Opið hús á morgun, miðvikudag kl.20 #53114
    Goli
    Meðlimur

    Opið hús hljómar vel, en smá klúður að hafa það á sama kvöldi og samæfing undanfara. Getum við ekki haft það í huga næst?

    in reply to: Tindfjallaskáli kominn í bæinn. #52971
    Goli
    Meðlimur

    Myndir frá flutningnum eru komnar á netið:

    http://maggy.smugmug.com/gallery/5675890_Bzq9q#349773938_Y42az

    in reply to: hot stuff frá telemarkfestivali #52580
    Goli
    Meðlimur

    Flottar myndir, jólasveinarnir þakka fyrir sig!

    Reyndar vilja þeir sveinarnir þakka Tátunum sérstaklega fyrir að stuðla að framgangi jólanna, þó ekki hafi dugað alveg til efstu metorða. Og já líka fyrir matarstússið, þeir Ketkrókur, Bjúgnakrækir og Skyrgámur voru hæstánægðir. Askasleikir sá svo um uppvaskið.

    P.S. Hvar var Sissi?

25 umræða - 1 til 25 (af 53)