0808794749

Forum Replies Created

Viewing 25 posts - 51 through 75 (of 217 total)
  • Author
    Posts
  • in reply to: Kuldaklifur á þrettándanum #56096
    0808794749
    Member

    Þetta eru kynngimagnaðar myndir.
    Mér þykir þú harður að taka myndir í svona aðstæðum!

    in reply to: Jólaklifur, skíðun og Glögg #55944
    0808794749
    Member

    Úje.

    Það lítur allt út fyri að það verði kominn vetur á laugardag. Það er snilld.
    Ég stefni á að mæta.

    in reply to: Að pósta myndum #55859
    0808794749
    Member

    Það sem mér dettur helst í hug að þær séu of stórar myndirnar. Þessi mynd er 3456×2304 og 2.31 MB og fór inn án vandkvæða.
    Hvaða aðferð ertu annars að nota?

    kv.

    in reply to: Að pósta myndum #55858
    0808794749
    Member

    Prufaprufa123 tele2010_082.jpg

    in reply to: Jólagleði í Fjallakofanum #55847
    0808794749
    Member

    Flott boð og tilvalið að nýta sér tilboðin þegar maður velur sér eigin jólapakka!

    in reply to: Fyrsta ísklifur vetrarins #55732
    0808794749
    Member

    Hæhó

    Eitthvað að frétta af aðstæðum í dag???

    in reply to: Klifurbelti til sölu. #55691
    0808794749
    Member

    Takk fyrir linkana. Ég bætti þeim inn á Búnaðarbazars-eventinn á flettismettinu. Gott að minna fólk á ábyrga kaup-og sölumennsku.

    in reply to: Sísonstart/BÍS og Búnaðarbazar #55676
    0808794749
    Member

    dagskrár-hnappurinn smá bilaður í augnablikinu…

    Vil því minna á að opnað verður fyrir BÍS-klifur kl. 20.30 í kvöld. Klifurhúsið býður félögum ókeypis aðgang til að testa leiðirnar sem Palli hefur sett upp í vikunni.
    Jón Viðar ætlar svo að vera með Hnappavalla-myndasýningu kl.21.30.
    Látið orðið berast.
    Sjáumst spriklandi spræk í kvöld!

    in reply to: GPS græjur #55630
    0808794749
    Member

    Skabbi á þitt tæki það ekki til að krassa?

    Ég er búin að eiga Garmin Etrex legend í örugglega 4 ár og það virkar fínt. Hægt að setja minniskort og landakort.
    Battery life á legend er 25 klst en 20 stundir á Garmin 62.
    Mér finnst það skipta mjög miklu máli. Eins að tækið sé ekki of stórt.

    Over & out.

    Sveinborg

    in reply to: Vefmyndavél og veðurstöð í Eilífsdal #55508
    0808794749
    Member

    Af ja.is sýnist sem afstaðan milli Bæjar og Eilífsdals/íss sé nokkuð góð.
    Það má kannski díla við bóndann um að snúa vélinni er fer að hausta.

    in reply to: High Altitude Trekking Insurance #55505
    0808794749
    Member

    Hi Rory

    Thanks for sharing this with us. Sounds like worth checking out.
    Do you remember how much you paid for insurance on your Kilimanjaro trip?

    in reply to: Klettaklifurfestival #55499
    0808794749
    Member

    Hvernig fór helgin á Hnappó?
    Hver var með besta Ghettoblasterinn?
    Sprengdi einhver stigaskalann?

    Héldu skúrirnar sig fjarri Völlunum?

    in reply to: Tóftin á Hnappavöllum. #55459
    0808794749
    Member

    Ég kíkti á Hnappavelli í gær og sá að Tóftin er farin að taka á sig flotta mynd. Verður án efa glæsileg þegar framkvæmdum er lokið. Greinilega mikil vinna á bak við þessa uppbyggingu.

    Kannski að klifarar bíði þess að Tóftin verði tilbúin því ekki var þar sála er okkur bar að garði um hádegisbil…

    Jón Viðar ég er ekki í vafa að þessi orð þín verða látin berast sem víðast.
    Takk fyrir upplýsingarnar.

    in reply to: Hver gleymdi…? #55450
    0808794749
    Member

    Ég fór ásamt fríðum flokki skíðafólks inn í Flateyjardal. Gerðum út frá Heiðarhúsum og röltum á nálæga tinda sem bjóða upp á frábærar rennslisbrekkur. Eðal-vorfæri og frábær stemmning.

    p.s. að minnsta kosti helmingur ferðafólks gat farið með tryllta fylleríssögu af Hvítasunnu á Hnappó.

    in reply to: Borea adventures, fyrsti túr 2010 video #55418
    0808794749
    Member

    Greinilega nægur snjór og líka hægt að fá gott veður!
    Ég veit samt ekki um betri stað til að prjóna og horfa á skíðamyndir í stórhríð en um borð í Auroru við akkeri í Lónafirði.

    Steinþór þú stimplar þig rækilega inn sem ferðmálafrömuð með þessu vidjói. Og Dóri sem sjósundshetja.

    in reply to: BANFF í kvöld og annaðkvöld #55405
    0808794749
    Member

    Mér fannst Will Gadd frekar kjánalegur. Hann má alveg snúa sér að einhverju öðru en að fjöldaframleiða ísklifurmyndir með ofleik.

    Mér fannst solo-klifrið, Alone on the Wall, alveg rosaleg.
    Eins og mér finnst einhjól kjánaleg þá var myndin frekar fyndið. Á sama tíma og hún var sýnd kom í fréttum rúv viðtal við japana sem er að hjóla í kringum landið á einhjóli!!

    Þó að róðramyndin hafi ekki verið æsileg þá er það samt alveg fáránlegt sem þessi kona gerði. Dísús!

    in reply to: Óvæntir gestir, kite og Grænland #55388
    0808794749
    Member

    Mér var að berast skeyti frá þeim North Star félögum þar sem kemur fram að þeir eru gos-tepptir í Bretlandi eins og allir hinir.
    Þeir íhuga nú að leigja sér hjólabát en gera ekki ráð fyrir að ná til Íslands fyrir fyrirhugaðan fyrirlestur. Hann verður því að bíða betri tíma…

    in reply to: Banff og ljósmyndasamkeppni frestað um 2 vikur #55386
    0808794749
    Member

    Við búum á hvikulum klaka… Ég ætla því að nota tækifærið og kenna eldgosi um það að breyta þarf dagssetningu Banff hátíðar aftur.
    Við erum ekki að fresta henni í þetta skiptið heldur færa fram um nokkra daga.
    Takið frá mánudags og þriðjudagskvöldið 26. og 27. apríl.
    Hentar vonandi námsmönnum, ferðaglöðum og partýglöðum aðeins betur en fyrri dagssetning.

    Sýningar hefjast í Mörkinni kl. 20 bæði kvöld.
    Úrslit í ljósmyndasamkeppni verða kynnt seinna kvöldið.

    Dagsskrá og frekari upplýsingar verða tilkynnt á alllllra næstu dögum.

    in reply to: Telemark festivalið #55331
    0808794749
    Member

    Smá tilkynning
    BSO: Bifreiðastöð Oddeyrar býður okkur 15 % afslátt af taxta leigubíla út á Hrafnagil…

    in reply to: Telemark festivalið #55330
    0808794749
    Member

    Ég held í bjartsýnina og neita að taka út klausuna um hið mittisdjúpa…
    Kem með dverga til öryggis.

    Vil annars minna fólk á að vera með reiðufé á sér fyrir aprés ski og veisluna um kvöldið.
    Síðasti séns til að skrá sig í veisluna er á hádegi á föstudag.

    in reply to: Veður á fjöllum #55325
    0808794749
    Member

    hann var ekki alveg ber að ofan. hann var með bindi!

    takk fyrir mig. þurfti að sjá á eftir seinni hálfleik og missti því örugglega af spennandi upplýsingum um mismunandi veðurspár.
    kunna norsararnir þetta nokkuð?

    in reply to: Telemark festivalið #55307
    0808794749
    Member

    Dagskrá tíunda Telemarkfestivalsins hefur verið uppfærð inn á dagskrársíðum.

    Fréttir af Telmark-hófinu á laugardagskvöldið…
    2500 kr kostar inn á herlegheitin og skulu greiðast í reiðufé við inngang Íslandsbæjarins á Hrafnagili.
    MUNA að skrá sig á hófið, annað hvort á dagskrársíðunni eða hjá sveinborg (at) hotmail (punktur) com

    in reply to: Telemark festivalið #55295
    0808794749
    Member

    Húrra!

    Ég get tekið þátt í brautarlagningu verði hún á laugardagsmorgninum og líka verið með í að taka hana niður.

    Gott að minna á skráninguna. Þeir sem ætla að skrá marga ( sem eru kannski ekki með aðgang að síðunni) geta sent póst á mig.

    sveinborg (at) hotmail (punktur) com

    sjáumst í herlegheitunum fyrir norðan!

    in reply to: KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn #55286
    0808794749
    Member

    Gott að heyra að ísbryðjandi harðkjarninn mun hafa eitthvað við að vera á meðan við sósjal-telemarkarar skemmtum okkur hinum megin við hólinn í Hlíðarfjalli.
    Vúhú! kisskiss. telly_238.jpg

    in reply to: Ísklifur II #55234
    0808794749
    Member

    Ísklifurnámskeið sömu helgi og Ísklifurfestival?

Viewing 25 posts - 51 through 75 (of 217 total)